Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 12

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 12
92 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 1) Lyf kann að vera gefið við kvilla sem í sjálfu sér er teratogen eða hefur slæm áhrif á fóstur. 2) Gallað eða vanskapað fóstur kann að framkalla ein- kenni hjá móður, sem krefst lyfjameðferðar. 3) Lyf kann hugsanlega að koma í veg fyrir fósturlát á fóstri, sem ella hefði eyðst vegna eigin galla. 4) Lyf gefur bundist öðru lyfi eða efnum gefnum samtím- is, sem siðan á samverkandi hátt, leiða til van- skapnaðar eða truflana hjá fóstri. 5) Margar þeirra ránnsókna, sem farið hafa fram, hafa verið framkvæmdar án viðmiðunarhópa, sem verulega hefur rýrt gildi þeirra. 6) Áhrif lyfja á dýr i dýratilraunum eru oft allt önnur en á menn, til dæmis virtist Thalidomid skaðlaust í dýra- tilraunum. í spjalli mínu hér á eftir ætla ég að fjalla um notkun áfengis, tóbaks og lyfja á meðgöngu. Ég tek sérstaklega fyrir þá hættu sem fóstrum er búin af sumum þessara efna og rek afleiðingar. Ég legg áherslu á, að hver læknir sem ávísar lyfi á ófríska konu, geri það ekki nema brýna nauðsyn beri til. Að hann sé meðvitaður um áhættur og geri konunum ítarlega grein fyrir þeim. En snúum okkur þá að helstu efnaflokkunum. Fyrst eru það sjálfskaparviti kvennanna sjálfra: Vín — Tóbak — Kaffi Ofneysla áfengis á meðgöngu leiðir til margvíslegra fósturgalla, lágrar fæðingarþyngdar og lélegs þroska eftir fæðingu. Talað er um svokallað ,,fetal alcohol syndrome” hjá þessum ógæfubörn- um. Sum þeirra fá líka svæsin fráhvarfseinkenni fljótt eftir fæðingu, sem leitt getur til dauða. Álitið er að allt að ein af hverjum þúsund ófrískum konum sé drykkjusjúk. Rannsóknir hafa sýnt fram á, að hættan af fósturskemmdum er tvöfalt hærri hjá þessum konum í samanburði við þær sem drekka hóflega. Því er við að bæta að um 60% ofdrykkjukvenna reykja, um 40% hafa eða misnota lyf samtímis og margar þeirra neyta einhæfrar fæðu og eru vannærðar, þannig að fleira en vínið eitt kann að eiga þátt í þeim fósturgöllum sem fram koma hjá drykkjusjúkum konum.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.