Ljósmæðrablaðið - 01.12.1986, Side 3
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
131
Til Ijósmæðra
I 1. tbl. Ljósmæðrablaðsins þessa árs greindi Guðrún Björg,
formaður LMFÍ frá vinnslu Ljósmæðraráðs að drögum að reglu-
gerð fylgjandi Ljósmæðralögunum Nr. 67/1984. Margar ljós-
mæður hafa að undanförnu spurt um hvað gangi í þeim málum.
Ljósmæðraráð lauk vinnu sinni við reglugerðina í júlí síðastlið-
inn, og sendi þá reglugerðina frá sér. Fyrsta október síðastliðinn
fóru síðan fulltrúar frá stjórn LMFÍ á fund heilbrigðisráðherra
Ragnhildar Helgadóttur, til að ítreka að reglugerðin verði sett.
Ekkert hefur heyrst frá ráðuneytinu hvenær eða hvort reglugerðin
eigi eftir að sjá dagsins ljós. Það má segja, að það sé með ólíkind-
um, hvað seint gengur að koma málefnum ljósmæðra í viðunandi
horf, og hvað endalaust er hægt að salta öll málefni ljósmæðra í
heilbrigðisráðuneytinu. Elstu opinberri stétt kvenna hér á landi er
ekki mikil virðing sýnd þar. En fólk á þeim bæ og ýmsir aðrir hafa
þeim mun meiri áhuga fyrir skólahúsnæði okkar ljósmæðra, sem
Þuríður Bárðardóttir, formaður LMFÍ barðist fyrir að byggt yrði
sem menntastofnun fyrir ljósmæður á árunum 1934-1946. En
flutt var í skólahúsið 1949, en síðar var byggt ofan á það 1964,
begar skólinn varð að tveggja ára skóla. í dag má skólinn þakka
fyrir að fá að halda fjórum herbergjum fyrir starfsemi sína. Ég
yeit ekki hvers við ljósmæður eigum að gjalda þótt skólahús
okkar hafi verið byggt á Landspítalalóðinni á sínum tíma. Það er
ekki annað hægt að segja en að ljósmæður séu fótum troðnar
hvað varðar ýmis réttindamál, hið sama á við um launamál ljós-
mæðra. Mér er stundum til efs hvort við búum í lýðræðislandi,
að minnsta kosti finnst mér ljósmæður eigi ekki að láta
bjóða sér slikt lengur. Mjög nauðsynlegt er að LMFÍ standi sem
fyrst fyrir ráðstefnu um fagleg, félagsleg og réttindaleg málefni
Ijósmæðra, sem skili niðurstöðum til að byggja á framtíðarstefnu-
mótun ljósmæðrastéttarinnar og sem skapað gæti samstöðu allra
Ijósmæðra á landinu, ekki veitir af.
»,Því sameinaðar stöndum við en sundraðar föllum við.”
Ljósmæður látið frá ykkur heyra í blaðinu okkar.
Með félags- og baráttukveðjum,
I nóvember 1986
Eva S. Einarsdóttir, kennslustjóri LMSÍ
Sit í varastjórn LMFÍ og í Ljósmæðraráði.