Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1986, Qupperneq 10

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1986, Qupperneq 10
138 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ kunnar. Almennt virðist sem hættan sé mismikil eftir þvi af hvaða orsökum ástungan er gerð. Margar rannsóknir hafa verið gerðar til að meta áhættu á fóstur við legástungur gerðar á 2. trimestri til greiningar ætt- gengra sjúkdóma eða meðfæddra galla. Sameiginlegt þeim flest- um var, að engin munur var á fæðingarþyngd, erfiðleikum á nýburatímabili, né vexti og þroska fram til eins árs. Samkvæmt öðrum heimildum leiddu rannsóknir í Bretlandi og USA til þeirrar niðurstöðu að aukin tíðni var á RDS (respiratory distress syndrome) hjá börnum þar sem legástunga hafði verið gerð á meðgöngu. Rannsóknir þessar þurfa frekari staðfestingar til að teljast marktækar. Ekki fundust skaddanir á börnum eftir ástung- una í þessum rannsóknum. Breska rannsóknin leiddi einnig í Ijós aukna tíðni blæðinga fyrir fæðingu s. s. fylgjulos og frá fyrirsætri fylgju. Þetta má þó draga í efa þar sem tíðni fyrirsætrar fylgju eykst með hækkuðum aldri móður og fleiri meðgöngum. Hafi blóð blandast legvatnssýninu gerir það erfiðara að rann- saka það og getur jafnvel valdið falskri niðurstöðu s. s. lækkun á L/S hlutfalli. Það sama gildir ef legvatnið í sýninu er meconium mengað. Ábendingar Hér fara á eftir nokkrar helstu ábendingar fyrir legástungur við leit að erfðagalla. 1) Aldur foreldra. Misjafnt er eftir löndum, aðstöðu og áliti lækna við hvað er miðað. Aldur móður er miðaður við 35, 37, eða 40 ára og eldri. Aldur föður er oft miðaður við 50 ára og eldri. 2) Konan áður gengið með barn með litningagalla. 3) Litningaafbrigðileiki hjá öðru hvoru foreldri. 4) Down syndrome eða aðrir litningagalla í nánum fjölskyldu- meðlim. 5) Konan misst fóstur þrisvar sinnum eða oftar. 6) Áður fætt barn með miklar vanskapanir án þess að frumu- erfðafræðileg rannsókn hafi verið gerð. 7) Kyngreining fóstursins nauðsynleg vegna alvarlegs galla bundnum x litning.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.