Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1986, Side 12

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1986, Side 12
140 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Notagildi 1) Litningagallar: Frumur sýnisins er hægt að nota til greiningar erfðagalla. Ræktun þeirra tekur 10-20 daga. Getur verið um að ræða of mikið af litningum, vöntun á litningi, eða hluta hans, eða samruni litninga eða litningahluta. Algengasti litningagallinn á lifandi fæddum börnum er Trisomy 21 eða Down’s syndrome. Oftast er þá aukalitningur nr. 21 eða samruni litninga. Talið er að miklu fleiri fóstur með þennan galla nái aldrei fullri meðgöngu. Vitað er að líkur þessa galla aukast með hækkuðum aldri móður. Það sama á við um aðra Trisomy galla og kynlitningagalla. 2) Alfafetoprótein (AFP) AFP er mælanlegt í legvatni við 15-20 v. Það kemur mest ef ekki allt frá fóstrinu. Er það meginpróteinið í blóðvökva fósturs- ins. Upphaflega er það framleitt i nestispokanum en í lok 1. trim- esters kemur það nær allt frá lifur. Hæstur er styrkur AFP í blóð- vökva fósturs og legvatni við 13 v. AFP í legvatninu er 1/1000 af magni þess í fóstrinu. (mynd 30). Eðlilega kemur AFP í legvatnið með þvagi fósturs. Sumt af því fer um belgina (chorionic plate) yfir í blóðrás móður. Styrkur AFP í blóði móður er aðeins um 1/100-1/1000 af því sem er í blóði fósturs. Þessi lági styrkur hjá móður eykst hægt þar til seint á meðgöngunni. Eftir fyrstu 13 vikurnar minnkar AFP bæði í blóði fósturs og legvatni jafnhratt ef allt er eðlilegt. Nauðsynlegt er að vita nokkuð nákvæmlega lengd meðgöngunnar við ástunguna þar sem styrkurinn er svo breytilegur og minnkar snöggt. Hækkun á AFP i legvatn, blóði móður eða hvoru tveggja sést við mörg tilfelli: a) Tuba neuralis lokast ekki á fósturskeiði. AFP lekur út frá opn- um taugavef. Dæmi: anencephalus og spina bifida. b) Meðfæddir gallar á nýrum s. s. polycystisk nýru. c) Lokun á vélinda og smágörnum. d) Exomphalos þar sem garnir bunga út í naflastreng. Þetta er algengt þar sem aðrir gallar eru einnig til staðar: Trisomy 13, 18, 21, hjartagallar o. fl. 0 Sacrococcygeal teratoma. g) Turner’s syndrome (xo). h) Fósturdauði.

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.