Ljósmæðrablaðið - 01.12.1986, Page 19
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
147
6) Efnaskiptasjúkdómar
Hægt er að greina nokkra efnaskiptasjúkdóma með ensím-
mælingu i legvatninu.
Amniography
Hægt er að sprauta vatnsuppleysanlegu joði, radioskyggniefni í
amnionholið við rannsókn á legvatninu, fóstrinu eða fylgjunni.
Nokkur dæmi um notkun þessa eru:
• Ef legvatnsmagn er óeðlilega mikið aukið.
• Ef fylgjan er staðsett óeðlilega.
• Við rannsókn á útlínum mjúkvefja fóstursins.
• Eftir nokkrar klst. þegar fóstrið hefur kyngt er hægt að sjá
meltingarfærakerfi þess.
• Mola gefur mjög sérstakt útlit í amniographiu en sónar er
auðveldari og áreiðanlegri til greiningar á henni.
Fetography
Sérstakt efni, fituuppleysanlegt Ethiodol er notað. Sprautað er í
amnion holið og loðir þá efnið við fósturfituga húð fóstursins og
útlínur þess sjást mun betur en við amniography þar sem er notað
vatnsuppleysanlegt skyggniefni.
Sónar
Sónarinn gefur mikilsverðar upplýsingar um legvatnið.
Hann gefur t. d. upplýsingar um uppruna þess með því að á
honum sést blaðra fóstursins og tæming hennar. Þvagmyndun
hefur verið mæld í sónar.
Sónarinn gefur ennfremur upplýsingar um magn legvatnsins.
Hægt er að greina oligohydramnion og hydramnion klínískt þar
sem engin einföld, nákvæm aðferð er til við að mæla legvatnið.
Sónarinn sýnir einnig mögulega galla á fóstrinu sem orsaka
hydramnion eða oligohydramnion.
Sónarinn kemur yfirleitt í stað amniografíu og fetografíu. Er
það mikill kostur þar sem ekki er þörf röntgen geisla og ekki er
farið inn í amnion holið með utanaðkomandi efni.