Ljósmæðrablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 35
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
163
meðganga og fæðing ganga óeðlilega fyrir sig og senda konuna þá
til sérfræðings.
Þó u. þ. b. 30-35% fæðinga hafi verið í heimahúsum síðustu ár
hefur mikil breyting átt sér stað. Árið 1960 fæddu 70% kvenna
heima. Nú fæða 60% kvenna á fæðingarstofnunum, þar af er
keisaratíðni 20-25%. Þetta hefur þó ekki orðið til þess að ljós-
mæður misstu spón úr aski sínum (sjá súlurit) því að á árum áður
var hlutverk almennra lækna í sambandi við fæðingar mun meira.
Hinn almenni læknir hefur smátt og smátt hætt að taka á móti
börnum í heimahusum og á stofnunum.
Sérfræðingur
Almennur læknir
Ljósmóðir
Það sem gerir ljósmæðrum kleift að stunda sjálfstæðan rekstur
er m. a. tryggingarkerfi Hollendinga. Þeir hafa tvenns konar
tryggingu, þ. e. nokkurs konar sjúkrasamlag sem lægst launuðu
launþegar og opinberir starfsmenn eru í (70%) og einkatryggingu
(30%). Hollenskar konur geta valið á milli ljósmæðra, almennt
starfandi lækna og sérfræðinga til að fylgja sér í gegnum með-
göngu og fæðingu.
Þegar um eðlilega meðgöngu og sængurlegu í 10 daga er að
ræða borgar sjúkrasamlagið ljósmóður, en ekki almennt starfandi
lækni eða sérfræðingi. Ljósmóðirin fær borgað fyrir hverja
sængurkonu þriðjung fyrir mæðravernd, þriðjung fyrir fæðingar-
hjálp og þriðjung fyrir sængurlegu, ákveðna upphæð sem er
endurskoðuð frá ári til árs.