Ljósmæðrablaðið - 01.12.1986, Page 44
172
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
BPD mœlingar hafa tvö staöalfrávik upp að 22ja vikna með-
göngulengd sem svarar til ± 7 daga. Á bilinu 24 - 30 vikur eru
tvö staðalfrávik ± 10 dagar en eftir það ± 14 dagar.
Beinamœlingar hafa tvö staðalfrávik upp að 22ja vikna með-
göngulengd sem svara til ± 7-8 daga, en eftir það eru frávik
meiri en fyrir BPD-mælingar.
Ef bæði BPD og FL eru notuð eykst nákvæmni við ákvörðun
meðgöngulengdar.Reikna má meðgöngulengd út frá meðaltali
BPD og FL með ± 6 daga nákvæmni (tvö staðalfrávik) sam-
kvæmt líkingunni: BPDx 1,2 + FLx 1,0 + 49,0= meðgöngu-
lengd í dögum.
í skoðun við 18-19 vikur er reynt að skoða aðallíffærakerfi
fósturs og staðsetja fylgju. Ef fylgja er greind sem lág-
sæt / fyrirsæt ber að athuga að í 90% tilvika er slík fylgja ekki
lengur lágsæt / fyrirsæt á síðasta þriðjungi meðgöngu vegna
þess að þegar legbolur vex færist fylgjubeður ofar og frá innra
legopi.
Komi kona til ómskoðunar og reynist skemur gengin en 18
vikur eða ef skoðun er ófullnægjandi, er rétt að henni sé boðið
að koma aftur á heppilegum tíma.
Vakin er athygli á því að til þess að unnt sé að ákveða
meðgöngulengd og væntanlegan fæðingartíma með nægilegri
nákvæmni, þarf að stefna að því að ómskoðun fari fram fyrir
20. viku. Ef skoðun er gerð of snemma er oft erfitt að meta
fósturútlit og fleiri fylgjur eru sagðar lágstæðar heldur en ef
skoðun er gerð við 18 -19 vikur. Hámarksnýtni fcest úrskoðun
við 18-19 vikur.
Sé áœtlað að kona gangist undir sérstakar greiningaraðferðir,
svo sem legástunga eða sýnitöku úr æðabelg, er skemaákvörð-
un meðgöngulengdar gerð eins fljótt og mögulegt er til að
hægt sé að tímasetja aðgerðina.
3. Ofangreind staðalfrávik þýða að ekki á að breyta væntanleg-
um fæðingardegi barns frá því sem reiknað er samkvæmt
fyrsta degi síðustu tíða, nema munur á meðgöngulengd sam-
kvæmt síðustu tíðum og ómmœlingarmeðaltali sé meiri en 7