Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 5
BRAGI SKÚLASON, sjúkrahúsprestur Ríkisspítala:
Sorg foreídra
Inngangur
I upphafi þessarar umfjöllunar lang-
ar mig að varpa fram þeirri hugsun, að
í tengslum við hvern missi komi fyrri
reynsla, fyrri missir inn í myndina, sér-
staklega við úrvinnslu sorgarinnar. Þar
með er rétt að huga að eigin fjölskyldu-
sögu, þegar við upplifum missi. Mér
virðist sem færa megi fyrir því margvís-
leg rök, að sorgarviðbrögð geti verið
lærð innan fjölskyldunnar. Þannig sér
yngri kynslóðin hina eldri syrgja og sú
reynsla mótar sorgarúrvinnslu yngri
kynslóðarinnar síðar. Hafandi sagt þetta
vil ég bæta við, að þessi reynsla, sem
við höfum lært af í fjölskyldusögu okk-
ar, getur orðið okkur til góðs, en sá
möguleiki er líka fyrir hendi, að hún
hindri okkur í að vinna úr og fá útrás
fyrir sorg okkar.
Fyrr á öldum, þegar ungbarnadauði
var mun algengari en nú er hér á landi,
þá voru meiri líkur á, að einstaklingur-
inn upplifði dauða barns í sínu nánasta
umhverfi en nú er. Þar af leiðir, að þessi
reynsla var nokkuð, sem margir sáu for-
eldra sína eða aðra nána ættingja fara í
gegnum og gátu nýtt þá reynslu, þegar
þeir stóðu síðar í sömu sporum. Nú er
barnsmissir nokkuð, sem er ekki eins
algengur hluti af fjölskyldusögu og áð-
ur var, færri hafa reynsluna og færri
hafa forsendu til skilnings á tilfinning-
um foreldranna. Og enn síður við sjald-
gæfari missi eins og við missi eldri
barna, t.d. í bílslysum, eða sjálfsvígum.
Forsorg — aðdragandi
Við skulum hugsa okkur, að barnið
okkar greinist með alvarlegan sjúk-
dóm, sem sterkar líkur benda til að
muni leiða það til dauða. Við reiknum
með því, að miðaldra einstaklingar og
aldraðir fái alvarlega sjúkdóma og
deyi, en það gengur þvert á drauma
okkar, vonir og óskir, þegar barn verð-
ur alvarlega veikt.
Þegar barnið okkar veikist þá:
1) breytist heimur okkar
2) breytist lífsstíll okkar
3) breytast sambönd okkar við ann-
að fólk
4) breytist verðmætamat okkar.
Fyrstu viðbrögð eru áfall, en síðan
förum við að óska eftir upplýsingum:
Gat ég komið í veg fyrir þetta? Við finn-
___________________________________ 3
ljósmæðrablaðið