Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 11
MARGA THOME, dósent:
Ljósmæður og rannsóknir
Undir þessu heiti héldu norrænar
ljósmæður í fyrsta sinn ráðstefnu um
rannsóknir í ljósmóðurstarfi þann
26.-28. sept. sl. í Osló. Frumkvæði
að ráðstefnunni hafði Berit Holter, for-
maður Norska Ljósmæðrafélagsins,
sem er kunnug nokkrum íslenskum
ljósmæðrum. A ráðstefnunni kynntust
Ijósmæður þeim rannsóknum, sem
Ijósmæður hafa unnið við að undan-
förnu á Norðurlöndunum, starfsemi
MIDIRS (Midwives Information And
Resource Service) á Bretlandi svo og
hópstarfi sem stuðlaði að læsi á rann-
sóknir ljósmæðra. Fyrir milligöngu
Hildar Kristjánsdóttur, ljósmóður og
hjúkrunarfræðslustjóra á Landspítala
sótti Marga Thome, dósent við náms-
braut í hjúkrunarfræði og ljósmóðir,
H.I., ráðstefnuna til að flytja erindi.
Hún lýsir hér í stuttu máli því sem fram
fór á ráðstefnunni:
Eríndi
Berit Holter flutti inngangserindi til
að svara tvíþættri spurningu: 1. Til
hvers eru rannsóknir í ljósmóðurfræði?
°9 2. Hvaða viðfangsefni eiga ljós-
niaeður að rannsaka? I erindi hennar
kom fram sannfæring um að rannsókn-
lr geta veitt ljósmæðrum mikilvægar
uPplýsingar í starfinu og einnig að rann-
sóknir geta bætt þjónustu ljósmæðra
■-•Jósmæðrablaðið _________________
og jafnframt leitt til þróunar á starfs-
sviði þeirra.
Jilly Rosser, ljósmóðir og starfsmað-
ur MIDIRS skýrði síðan frá því af hverju
hún hefði helgað líf sitt því að safna
upplýsingum úr tímaritum fyrir ljós-
mæður og gera torlæsilegar greinar að-
gengilegar fyrir meginþorra stéttar-
innar. Hún sagðist trúa því að þekking
á rannsóknum gefi ljósmæðrum aukin
völd til að breyta starfi sínu og þróa
það. Einnig væri upplýsingaflóðið orð-
ið það mikið að erfitt væri fyrir einstak-
ling að fylgjast með nýjungum og
þróun í faginu. MIDIRS gefur út ,,Mid-
wifery Digest“, sem veitir samantekt á
fræðilegu efni og rannsóknum úr 300
tímaritum. Auk samantektar á greinum
birtist gagnrýnin úttekt, þannig að les-
andi fær skýrari mynd af gildi efnis og
gæðum og takmörkunum rannsókna.
Midwifery Digest er keypt af Bókasafni
Landspítalans. I áskrift kostar tímaritið
36,00 sterlingspund fyrir einstakling.
Vaxandi þörf fyrir tölvuleit að lesefni
hefur skapast hjá ljósmæðrum á undan-
förnum árum. MIDIRS mætir þeim
þörfum og leitar að lesefni undir
ákveðnum lykilhugtökum í tölvu, t.d.
meðganga - legvatnsástunga. Slíka
þjónustu þarf að greiða fyrirfram til
MIDIRS. Bókasafn Landspítalans get-
ur veitt íslenskum ljósmæðrum hlið-
stæða þjónustu, biðji þær um það.
______________________________________ 9