Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Síða 14
EDDA JÓNA JÓNASDÓTTIR, hjúkrunarfræðingur og Ijósmóðir:
ABC-eining á kvennadeiíd
Södersjúkrahúss
í Stokkhóími
Hér verður sagt frá starfsemi
ABC-einingar á kvennadeildinni á Sö-
dersjúkrahúsi í Stokkhólmi. Efnið er
sótt í grein sem Ulla Waldenström lagði
fram á ráðstefnu sem haldinn var í Osló
dagana 26.—28. september 1991 og
bar yfirskriftina „ljósmæður og rann-
sóknir“.
Bakgrunnur ABC-eininga
Skammstöfunin ,,ABC“ stendur fyr-
ir „Alternative Birth Care“ sem má út-
leggja á íslensku sem „valkosti á fæð-
ingarþjónustu“.
ABC-einingarnar urðu til sem svör-
un við ,,vandanum“ við ,,að fæða eðli-
lega“ á sjúkrahúsum. Þær eru mismun-
andi eftir löndum en sammerki þeirra
er „vörnin um hina eðlilegu fæðingu11.
ABC-einingum var fyrst komið á í
Bandaríkjunum á sjöunda áratugnum.
1 dag eru slíkar einingar til t.d. í Kan-
ada, Astralíu, Þýskalandi, Austurríki
og Danmörku.
Með ABC-einingunum urðu valkost-
ir fyrir fæðandi konur fleiri og af mis-
munandi gerðum. í dag eru þær rót-
tækustu reknar algjörlega sjálfstæðar
12 ________________________________
fyrir utan sjúkrahúsin og jafnvel í tölu-
verðri fjarlægð frá sjúkrahúsi. ABC-ein-
ingar eru einnig deildir innan sjúkra-
húss eða hluti af fæðingardeild. Sam-
tímis tilkomu þeirra jókst hlutfall heima-
fæðinga.
ABC-einingin á kvennadeildinni á
Södersjúkrahúsi I Stokkhólmi var opn-
uð haustið 1989. Hún er innréttuð
sem sér eining á hæðinni fyrir neðan
fæðingardeildina. Farið var af stað
fyrstu árin með starfið sem rannsóknar-
og þróunaráætlun.
Markmið og aðferðir
ABC-einingar:
Markmið með ABC-einingu er:
— Þungun, fæðing og sængurlega
með sem fæstum sjúkdómum og
minnstum skaða fyrir konu og
barn ásamt
— bestu tilfinningarlegu lífsreynslu
og þroska fyrir móður, föður og
barn.
— Stuðla að sem mestri starfs-
ánægju hjá ljósmæðrum og
læknum.
— Halda kostnaði niðri eins og
hægt er.
I—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ