Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Page 15

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Page 15
Aðferðir við að ná þessum markmiðum er að: — Takmarka læknisfræðileg inngrip — Samfella í starfsemi ABC-eining- ar. — Foreldraábyrgð. — Virðing fyrir friðhelgi. — Heimilislegt umhverfi. Starfsemi ABC-einingar Takmörkuð læknisfræðileg tækni. A ABC-einingunni er ekki notaður sí- riti. I fæðingunni er hlustað eftir hjart- slætti barnsins með trépípu eða ,,dop- tone“. Það eru ekki notuð verkjalyf nema ef gefin er staðdeyfing þegar sauma þarf konu að lokinni fæðingu. Við verkjum t.d. á útvíkkunartímabil- inu er konunni ráðlagt að slaka á í volgu baðkari. Einnig er sprautað með hreinu vatni undir húð (sterilt vatten subcutant) og konunni gefið létt klapp eða nudd. A ABC-einingu eru engin ómskoðunartæki. Ef senda þarf konu í ómskoðun eða í sírita þá fer hún á venjulegu fæðingadeildina og þiggur þjónustuna þar. Ef frávik verða frá eðlilegri með- göngu, fæðingu eða sængurlegu, þá flyst konan í venjulegt mæðraeftirlit eða á fæðingardeildina. Um það bil 25% af konum sem byrja í ABC-eftirliti færast yfir í venjulegt eftirlit á með- göngutíma, í fæðingunni eða á fyrstu tímum eftir fæðinguna. Samfella í starfsemi ABC-einingar Meðgangan, fæðingin og sængurleg- an mynda eina samfellu í þungunarferl- inu. Starfsemi ABC-einingarinnar er þess vegna ein „verndar" samfella þar sem ljósmóðirin vinnur með mæðra- vernd, fæðingu og eftirlit í sængurlegu á sama stað. Ábyrgð foreldra Foreldrarnir bera sjálfir ábyrgð á barninu á meðan þau dvelja á ABC-ein- ingunni. Dvölin er stutt í mesta lagi 24 tímar eftir fæðingu. Móðirin tekur blóð- þrýsting sjálf og skráir allar athugasemdir sínar í mæðraskrána. A meðan þau dvelja á einingunni sjá þau (venjulega eiginmaðurinn) um máltíð- irnar sem samanstanda af sjúkrahúss- fæði eða mat, sem þau hafa haft með- ferðis að heiman, allt eftir þeirra ósk- um. Aðgangur að eldhúsi ABC-eining- arinnar er ótakmarkaður og verður nokkurs konar miðpunktur einingarinn- ar. Þar geta foreldrar eða verðandi for- eldrar hitt aðra foreldra og starfsfólk einingarinnar og kynnst starfseminni. Barnalæknir skoðar öll börn fyrir út- skrift. Foreldrunum er boðið upp á heimsóknir daginn eftir heimferð eða á fyrstu dögum eftir heimkomuna. A ABC-einingunni er veitt eftirskoðun og einnig er tekin PKU-blóðprufa af barn- inu á u.þ.b. á fimmta degi eftir fæð- inguna. Mikilvægur þáttur í mæðravernd ABC-eininganna eru foreldrahóparnir. 10—12 verðandi foreldrar hittast ásamt ljósmóður einu sinni í viku og ljósmæðrablaðið 13

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.