Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Side 16

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Side 16
fjalla þar um meðgönguna fæðinguna og foreldrahlutverkið. Virðing fyrir friðhelgi Foreldrarnir og starfsfólkið klæðast sínum eigin fötum og það setur svip á samskipti foreldra og starfsfólks. A meðan foreldrarnir dvelja á einingunni hafa þau eitt fæðingarherbergi til um- ráða. Þau hafa algjöran umráðarétt yfir herberginu og hafa t.d. möguleika á því að læsa hurðinni. Umhverfi ABC-einingarinnar er heimilislegt bæði að lit og húsgagna- samsetingu. I fæðingarherberginu er t.d. tvöfalt rúm, náttborð og lítið sófa- sett. Herberginu tilheyrir einnig bað. Störf Ijósmæðra Fram hefur komið að ljósmæðurnar á ABC-einingunni vinna með foreldr- unum allan ferilinn, frá því snemma í meðgöngu þar til að eftirskoðun kemur 2—3 mánuðum eftir fæðingu. Allar ljósmæðurnar vinna samskonar störf. Deildarstjórinn hefur þó meiri stjórnun- arstörf á höndum sér en tekur einnig þátt í almennu deildarstarfi. Ljósmæð- urnar hvetja konurnar til þess að taka þátt í deildarstarfi og gefa verðandi for- eldrum góðan tíma til að bera fram spurningar og tala um þætti er valda kvíða. Læknisfræðilegt eftirlit í mæðra- vernd er í megin dráttum það sama og í hefðbundnu mæðraeftirliti. Læknar eru ekki viðstaddir fæðingar á ABC-ein- ingunni. Ef frávik verður frá eðlilegum framgangi fæðingar ákveður Ijósmóðir- in að senda konuna á fæðingardeild- ina. Þar tekur n£ ljósmóðir við 14 __________________________________ ábyrgðinni og starfar samkvæmt venj- um og skyldum þeirrar deildar. Störf ljósmæðranna á ABC-eining- unni einkennast af mikilli ábyrgð, sjálf- stæði og sveigjanleika. Samfella milli mæðraverndar og fæðingarþjónustu veldur því að góð tengsl myndast milli foreldranna og ljósmæðranna. Að lokum um kosti og galla ABC-einingarinnar Foreldrar og Ijósmæður eru mjög ánægðir með þá samfellu sem einkenn- ir starfsemi ABC-einingarinnar. Það eru sömu ljósmæður sem sinna konum í mæðravernd, í fæðingu og í sængur- legu. Starfsemin er heimilisleg og lögð áhersla á að foreldrar upplifi fæðing- una sem jákvætt þroskaverkefni. Einn- ig er ánægja með að öll starfsemin skuli vera á sama stað. Tíminn sem for- eldrarnir dvelja á ABC-einingunni að lokinni fæðingu er stuttur og það getur reynst sumum foreldrum erfitt. Það getur valdið vonbrigðum þegar flytja þarf konu yfir á fæðingardeild- ina vegna læknisfræðilegra vanda- mála, jafnvel þótt foreldrarnir viti frá byrjun hvernig það gengur fyrir sig. Það getur einnig verið ljósmóðurinni erfitt að yfirgefa foreldra við slíkar að- stæður. Ljósmæðurnar á ABC-eining- unni á Södersjúkrahúsinu vilja fylgja konum yfir á fæðingardeildina og fá að annast konuna þar uns fæðingu lýkur. Þær telja sig þurfa að vinna með þenn- an þátt í framtíðinni. HEIMILD: Waldenström Ulla, ABC-vard, Konferansen ..jordmor og forskning" 26.-28. september 1991. I—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.