Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Síða 18
Unnið er að samræmdum reglum
um HIV smitgát. Unnin hefur verið
rannsóknahandbók á lausblaðaformi
fyrir danskar ljósmæður og mun að öll-
um líkindum verða sent eitt eintak til
hvers lands til umsagnar.
Samið hefur verið um laun ljós-
mæðra sem sinna sængurkonum sem
liggja sængurlegu á einkasjúkrahúsum,
en sængurkonur eru almennt útskrifað-
ar af fæðingardeildunum 1—-2 sólar-
hringum eftir fæðingu og því vilja ekki
allar konur una og fara því á einka-
sjúkrahús.
Óvissa ríkir nú um tilveru framhalds-
menntunar fyrir ljósmæður í Dan-
mörku, þar sem ekki sækja nógu margir
um námið. Danskar ljósmæður héldu
upp á 5. maí með því m.a. að senda
frá sér fréttatilkynningar um ljósmæður
og fæðingar, en málið vakti litla athygli
og fékk litla sem enga umfjöllun.
Ljósmæður á Grænlandi tilheyra
danska ljósmæðrafélaginu og hafa ver-
ið menntaðar í Danmörku til þessa. Nú
er mikil umræða um að flytja menntun-
ina til Grænlands og sníða hana þá að
þörfum landsins, og er þá ekki víst að
tryggt verði að hún uppfylli samnor-
rænar vinnumarkaðskröfur. Þetta gæti
átt eftir að verða hitamál.
Finnland
Með breytingum sem urðu á síðasta
ári á kröfum um menntun heilsugæslu-
hjúkrunarfræðinga í Finnlandi, hefur
ljósmæðrum fækkað mjög í mæðraeft-
1 6
irliti á heilsugæslustöðvum. Þetta hefur
aftur leitt til þess að mæðraskoðanir á
sjúkrahúsum hafa stóraukist. Þetta er
mikið hitamál í Finnlandi og hefur
finnska heilbrigðisráðuneytið bannað
umræðu um þetta mál í blöðum og fjöl-
miðlum til að hræða ekki almenning! .
Menntunarmálin eru enn komin í sviðs-
ljósið og nú vegna EB staðlanna, en
menntunin samræmist þeim ekki.
58 ljósmæður fóru á alþjóðaþing
ljósmæðra í Japan s.l. haust.
Finnskar ljósmæður hafa haldið
fund með ljósmæðrum frá Eistlandi og
munu halda því áfram.
Alþjóðadagur ljósmæðra fékk tals-
verða umfjöllun í fjölmiðlum.
Island
Vísað er til skýrslu stjórnar LMFI fyrir
árið 1990.
Noregur
Norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að
leggja fram stjórnarfrumvarp á árinu
1991 um þjónustu ljósmæðra í héraði,
sem kveður á um að ljósmæðraþjón-
usta verði tryggð í hverju héraði frá ár-
inu 1992. Hér er verið að leggja
peninga í fyrirbyggjandi starf og norsk-
ar ljósmæður fagna því að helsta bar-
áttumál þeirra s.l. 10 ár — jordmor der
mor bor — eða ljósmóðirin þar sem
mamma er, virðist nú ætla að komast í
höfn. Norska ljósmæðrafélagið vinnur
nú að tillögum um breytta ljósmæðra-
menntun. Mikil umræða er meðal i
þeirra um hvort taka eigi það skref að
bjóða uppá þann valkost, að hægt sé
að fara í ljósmæðranám án þess að
vera hjúkrunarfræðingur. Þessi um-
ræða hefur skapast vegna þess að ný-
_________________ I—JÓSMÆÐRABLAÐIÐ