Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 21

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 21
HILDUR KRISTJÁNSDÓTTIR, Ijósmóðir og hjúkrunarfræðingur: AB C-einingin á Söder sjúkra- húsinu í Stokkhóími ABC-einingin á Söder sjúkrahúsinu er tilraunaeining sem hefur verið rekin í 1 ár og er rannsóknarverkefni hjá Ullu Waldenström o.fl.. Tekinn var einn gangur á sjúkrahús- inu og hann innréttaður alveg upp á nýtt og er ekki annað hægt að segja en þarna sé draumavinnuaðstaða og þá ekki síður fyrir konurnar og aðstandendur þeirra. Deildin er mjög nýtískuleg og falleg og ef myndirnar prentast vel má sjá það. Þessari starfsemi hefur verið lýst nokkuð ítarlega í sænska ljósmæðra- blaðinu og hafa eflaust margar ljós- mæður séð það. Ég ætla að reyna að lýsa þessari starfsemi í stuttu máli hér 09 vona að ég gleymi engu. A deild- >nni er: Mjög falleg setustofa sem er ætluð konunum og aðstandendum þeirra, þar fer einnig fram öll fræðsla sem veitt er á deildinni. Ljósmæðurnar hafa 2 viðtalsherbergi, sem einnig eru notuð sem móttökuherbergi þegar kon- urnar leggjast inn. Þrjár geysifallegar fæðingarstofur, allar með sérsnyrtingu eru á deildinni. Konurnar eru á sömu stofunni þar til þær fara heim. Þær hafa barnið hjá sér LJÓSMÆÐR ABLAÐIÐ ____________________ og maka eða aðstandanda er boðið að vera hjá þeim sé þess óskað. Eldhús sem konurnar geta sjálfar unnið í og þar borða þær allar sínar Séð inn ganginn.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.