Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Page 23
máltíðir. Einnig geta þær komið með
eigin mat óski þær þess.
Ljósmæður annast öll störf á deild-
inni, allt frá þrifum upp í móttöku barn-
anna. Valið á þeim konum sem fá að
koma á deildina er þannig að þær óska
eftir því að koma til greina. Ljósmæður
og læknar á viðkomandi mæðravernd-
arstöð meta það hvort þær falli undir
þær reglur sem settar eru, en þær eru í
grófum dráttum þær, að þær hafi fætt
Baðherbergi áfast fæðingarstofu.
t
I
Eldhúsið góða.
eðlilega áður og að núverandi meðganga
sé eðlileg og án nokkurra sjúkdóma. Ef
þessi skilyrði nást fá þær að fara í viðtal
á ABC-eininguna þar sem önnur sía
ákveður hvort þær fái að vera með eða
ekki. Handahófskennst val er svo á
þeim konum sem komast í gegnum
þessa síu. Komi eitthvað upp í með-
göngunni, eins og hækkaður blóðþrýst-
ingur, bjúgur eða eitthvað álíka eru
þær umsvifalaust sendar til baka á fyrri
heilsugæslustöð og koma ekki til greina
lengur. Sama á við ef eitthvað kemur
upp í fæðingunni sjálfri. Konurnar eru
útskrifaðar innan 72 klst. frá fæðingu
og eiga kost á að koma á deildina til
skoðunar og viðtala eftir það.
Það var ævintýri líkast að sjá þessa
ljósmæðrablaðið
21