Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 25
HILDUR KRISTJÁNSDÓTTIR, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur:
Heimsókn á ABC-
fæðingaeininguna á
Sahígrenska sjúkrahúsinu
í Gautaborg
Ég átti þess kost að fá að skoða þessa
einingu f heimsókn minni til Svíþjóðar
í maí síðastliðnum. Britt Magnusson
deildarljósmóðir tók á móti mér og
sýndi mér deildina, jafnframt því sem
hún útskýrði fyrir mér í hverju starfsem-
in fælist.
Deildin hefur verið starfrækt síðan
haustið 1988 með þessu sniði. Um er
að ræða breytingu á fyrrum sængur-
kvennadeild á spítalanum. Sameinað-
ar voru 2 deildir í eina og er skiptingin
þessi: 2 stofur fyrir ABC umönnun,
þ.e. fæðingar, 1 baðherbergi í tengsl-
um við fæðingar, með nuddpotti, bað-
kari og sturtu, 17 rúm sem ætluð eru
fyrir ,,rooming-in“, ekki er gert ráð fyrir
nema 2 konum á stofu mest, 12 rúm
fyrir hefðbundna sængurlegu, svo og
keisarafæðingar, 10 rúm fyrir konur
með meðgöngusjúkdóma, stór bað-
stofa þar sem allar konur borða allar
máltíðir, dagstofa fyrir konurnar, einn-
ig er aðstaða fyrir ljósmæðramóttöku
og fræðslu til verðandi foreldra.
Húsnæðið er gamalt og mjög
,,sjúkrahúslegt“, langir gangar og
sjúkrastofur eru hefðbundnar. A fæð-
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ ____________________
ingastofunum tveimur eru súrefnis-
tæki, sog, hláturgastæki, lampi og
önnur hefðbundin áhöld á slíkum stof-
um, nema fæðingarúmið. Það er miklu
mun stærra en við eigum að venjast og
einna líkast hjónarúmi. A stofunni eru
einnig 2 þægilegir hægindastólar,
ásamt tréfæðingastól og Saco sekk.
Myndir skreyta veggina og gluggatjöld
eru lífleg og hlýleg.
ABC-einingin
Mönnun er sameiginleg á allri deild-
inni, en ljósmæðurnar skipta sér þann-
ig að þær eru um það bil 3—4 vikur í
einu á ABC-einingunni, en ef ekkert er
að gera þar á þeirra vakt sinna þær
öðrum störfum á deildinni.
Fyrirkomulagið er þannig að konurn-
ar hafa fengið upplýsingar um þennan
valmöguleika í mæðraverndinni og leita
sjálfar til deildarinnar þegar þær eru
gengnar með 34—36 vikur. Þá koma
þær til viðtals hjá ljósmóður, sem sýnir
þeim deildina, útskýrir í hverju starf-
semin felst, rætt er um undirbúning fyr-
ir fæðinguna eins og slökun, verkja-
______________________________ 23