Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 28

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 28
MIDIRS Margar ljósmæður þekkja MIDIRS. Hinum til fróðleiks eru hér upplýsingar 5 lauslegri þýðingu og endursögn. Frá 1986 hefur hópur af breskum ljósmæðrum rekið Midwives Informati- on and Resource Service = MIDIRS, sem fjórum sinnum á ári gefur út MIDIRS — Midwifery Digest, í mars, júní, sept- ember og desember. Þessar ,,upplýsingabækur“ eru þann- ig að þær eiga að veita ljósmæðrum greiðan aðgang að nýjum upplýsingum varðandi fagið. Starfsmenn MIDIRS lesa um 350 tímarit, þ.e. öll tímarit varðandi starfssvið ljósmæðra, sem gef- in eru út á enskri tungu. Þeir ákveða síð- an hvaða greinar skuli birtar í MIDIRS, annaðhvort í heild eða styttar. Oft eru umsagnir um greinarnar. Að auki legg- ur MIDIRS til eigin greinar um fagleg efni. Sagt er frá væntanlegum ráðstefn- um og nýútkomnum bókum. Alls eru þetta yfir 500 síður á ári. Innihaldinu er skipt í 7 þætti: 1. Ljósmæðrastörf — menntun, laun o.fl. 2. Meðganga. 3. Fæðing. 4. Sængurlegan og nýfædda barnið. 5. Þjónusta ljósmæðra. 6. Stefnur í fæðingarhjálp. 7. Ýmislegt. Askriftin kostar nú GBP 36 fyrir ein- stakling í Evrópu utan Englands — 48 fyrir stofnun. Midirs starfrækir einnig tölvuvædd- an upplýsingabanka fyrir áskrifendur sína. Þar eru nú á 12. þúsund greinar um öll hugsanleg atriði innan ljósmóð- urfræði. Þar er hægt að fá ábendingar um greinar eða greinarnar í heild. Öðru hverju stendur MIDIRS fyrir ráðstefnum um fræðin, Active manage- ment of Labour, the evidence for and against, er sú síðasta, sem haldin var í lok september 1991 í London. Bóksala er einnig á vegum MIDIRS, listi fylgir með til áskrifenda. Utanáskrift er: MIDIRS Institute of Child Health Royal Hosp. for Sick Children, St. Michael’s Hill, Britol, BS2 8BJ England. Elín Hjartardóttir LJÓSMÆÐUR Ljósmæðratalið er tilvalið til jóla- og tækifærisgjafa. Verðið er kr. 4.500. Skrifstofa LMFÍ 26 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.