Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 30
HILDUR SÆMUNDSDÓTTIR, ljósmóðir, Grundarfirði:
Bréf til ritstjóra
,,Menn geta ekki flúið örlög sín, en
menn geta deilt þeim með öðrum.“
Pushtu.
Þess vegna hripa ég hér nokkrar lín-
ur á blað um vangaveltur mínar um
grein Unnar Haugen, í síðasta ljós-
mæðrablaði. Þar fjallar hún um post
partum samtalet og ábyrgð ljósmæðra-
stéttarinnar gagnvart samfélaginu, ný-
buranum og hinni fæðandi fjölskyldu.
Unnur kemur víða við og skilgreinir
m.a. fæðinguna sem eðlilegt lífeðlis-
fræðilegt ferli, sem í flestum tilfellum
skilur eftir sig þroskaðri og lífsreyndari
foreldra, en á stundum er reynslan svo
þokukennd að engu er líkara en að við-
komandi hafi verið fjarlægur áhorfandi
en ekki þátttakandi.
Þegar ég lít yfir mínar konur á liðn-
um árum, með eðlilegar fæðingar, þá
eru það fyrst og fremst frumbyrjur sem
fá áfall eftir fæðingu. Þeim má skipta
þannig í flokka:
1) þær sem ganga með 12—20 daga
fram yfir,
2) þær sem eru lengur en 24 klst. í
fæðingu,
3) þær sem rembast 2 klst eða lengur,
4) þær sem fara þá í klukku eða töng
eða akút keisara, vegna grindar,
hjartsláttar eða annars.
Koma svo heim á fjórða eða fimmta
degi, aðspurðar um fæðinguna brosa
þær og segja ,,ég held að þetta hafi allt
gengið vel, ég var svo þreytt".
Allar ljósmæður sem starfa við
mæðraeftirlit þekkja svo þegar einmitt
þessar konur verða þungaðar aftur og
fyllast ótta við hið óþekkta. Jafnvel
6—10 árum seinna vantar þær enn
„andlega lækningu til aðgerðar á sárri
lífsreynslu,“ (Esttrop-Johannessen).
Það er mikil ábyrgð hverrar ljósmóð-
ur sem lætur þarna tækifæri sér úr
greipum ganga til að foreldrar geti kom-
ið skipulagi á óreiðuna með orðum.
Feðurnir mega ekki gleymast í dag, þar
sem þeir eru áhorfendur og skynja öll
vafaatriði mjög sterkt. Oft er samband
ungra foreldra heldur ekki nógu þrosk-
að til að lifa af illa farna epsiotomiu.
Fjögurra daga sængurlegur auð-
velda okkur ekki leikinn. Svo hvaða
ráð eru þá fyrir hendi eða eru góð ráð
of dýr. Ég hef mikið hugleitt undanfar-
ið ár hvað það myndi kosta heilbrigðis-
kerfið að ljósrita fæðingarsöguna og
senda heilsugæslustöðinni með fæð-
ingartilkynningu. Þar kæmi m.a. fram
af hverju konan fer í mænudeyfingu,
og ef eitthvað sérstakt hefur borið út af
28 _____________________________________________ I_IÓSMÆÐR ABLAÐIÐ