Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Side 31
andlega, auk eðlilegrar skráningar á
fæðingarsögu. Með slíkt í höndunum
getur starfsfólk heilsugæslunnar haldið
utan um hina órjúfandi keðju, með-
göngu — fæðingu — brjóstagjöf — eft-
irskoðun.
Við ljósmæður og læknar megum
ekki gleyma að upplýsingastreymi okk-
ar á milli þarf að vera beint en ekki
munnlegt með konuna sem millilið,
þegar eitthvað hefur borið út af eða
konan hefur tekið í sig kjark og gert til-
raun til að tala út. Þetta síðastnefnda á
einnig við um fyrstu heimsókn til barns,
skoðun á stöðinni, eftirskoðun eða sér-
stakt viðtal við þá ljósmóður sem annast
hefur mæðraeftirlitið eða foreldrafræðsl-
una og undirbúið fæðinguna með fjöl-
skyldunni. Það er ótvírætt hér eins og
annars staðar, að betra er seint en
aldrei.
Ef ekki sængurleguviðtal eða ,,post
partum-viðtal“, þá viðtal eftir sængur-
legu.
Kveðja Hildur.
Margar Ijósmæður hafa sýnt áhuga á að eignast Ljósmæðrablaðið frá
upphafi. Nú er búið að Ijósprenta þau eintök, sem voru uppseld.
Veröið er 100 kr. fyrir stök blöð. 25% afsláttur ef keypt eru 30 blöð eða
fleiri. Einnig fást vönduð hulstur utan um blöðin. Þau eru 5 cm að þykkt,
í grænum lit með gylltri áletrun. Verðið er 600 kr. stk.
Skrifstofa LMFÍ
Jóíatrésskemmtun L.M.F.Í.
verður haldin í Fósbræðraheimilinu við Langholtsveg í
Reykjavík sunnudaginn 29. desember 1991 kl. 16.00—18.00.
Mætum vel með börnin.
Un dirbúningsnefn din
Ljósmæðrablaðið
29