Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 33

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 33
4. Tekið kristalla-próf. Þá er tekið strok frá leghálsi með bómullarpinna og sett á object-gler og skoðað í smásjá, hvort legvatn sé í strokinu. Meðferð: 1. a) Konan lögð inn og sett í sírita í 20—30 mín. Endurtekið á ca. tveggja tíma fresti eða eftir þörfum. b) Gerð ytri skoðun. Mældur hiti, púls og blóðþrýstingur. c) Nákvæm skráning á því hvenær legvatn fór að renna. d) Meta útlit legvatns. 2. Ef höfuð er hreyfanlegt fyrir ofan grindarinngang eða afbrigðileg staða á barni, þá er konan sett á legu. Annars er leyfð fótavist. 3. Sett upp venflo-nál. 4. Fylgjast með hita konunnar. 5. Fylgjast með breytingum á útliti legvatns og síritun. 6. Ef hríðar byrja ekki sjálfkrafa inn- an 6—12 tíma, þá er fæðing e.t.v. sett á stað með syntocinon-dreypi, 10 IE syntocinon í 500 ml af 5% glúkósu. Ef legháls er mjög óhagstæður er þó stundum byrjað með prostaglandinstíl. (Samkvæmt ákvörðun læknis). 7. Gera sem fæstar innri þreifingar! 8. Meta hvort ástæða sé til þess að konan sé fastandi og krosspróf. Barnið: 1. Barnalæknir er viðstaddur fæð- *ngu, ef legvatn er grænlitað eða meira en sólarhringur er liðinn frá því að leg- vatn fór að renna. 2. Ef legvatn er grænt, er sogað strax úr vitum barns um leið og höfuð er fætt. Hætta er á sýkingu hjá barni, ef legvatn fer i lungu. 3. Hafa tiltæka 6 ræktunarpinna ef: ’ Móðir er með hita. Meira en sólarhringur er liðinn frá því að legvatn fór að renna. Barna- læknir tekur þá strok frá barninu og sendir til ræktunar. Einnig er sent strok frá fylgju. 4. Barnalæknir metur hvort barn leggst á vökudeild til obs. og etv. lyfja- gjafar. MB/HÞ/SB Fyrri keisarafæðing Það sem sérstaklega þarf að hafa í huga við yfirsetu kvenna, sem hafa keisarafæðingu að baki og koma inn til fæðingar: 1. Setja upp venflo-nál. 2. Draga blóð í krosspróf og status. 3. Hafa konuna fastandi. 4. Setja upp vökva. 5. Síritun. E.t.v. innri þrýstingsmæl- ir. Rafskaut þegar belgjarof hefur orðið. 6. Föst yfirseta. Sé fæðing örvuð með Syntocin- on-dreypi, skal fara helmingi hægar en ella. Fylgjast skal vel með samdráttum í legi og að þeir líði vel úr á milli. Abyrgð ljósmóðurinnar er mjög þung á metunum og skal hún hafa eft- irfarandi atriði sérstaklega í huga: a) Ytri þreifing skal vera í lágmarki og framkvæmd með mikilli varúð. 31 *-JÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.