Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Síða 34
b) Hafa skal samband við lækni ef
eftirfarandi einkenni koma fram:
1. Lítill eða enginn framgangur á 1.
stigi fæðingar, þrátt fyrir góða sam-
drætti.
2. Vaxandi eymsli yfir öri.
3. Stöðugur sársauki í kvið.
4. Lélegur framgangur á 2. stigi
fæðingar.
5. Hröðun á hjartslætti barns.
6. Blæðing úr leggöngum.
7. Merki um lost.
8. Samdráttarhringur — Bandl’s
hringur.
BS/GMJ
Konur sem eru
Rhesus-neikvæðar
Þegar kona kemur í fæðingu skal
ljósmóðir, um leið og hún les yfir
mæðraskrá konunnar, athuga blóð-
flokk hennar. Ef konan er Rh-neikvæð
skal þegar eftir fæðingu, senda blóð frá
barninu til flokkunar og í Coombs-próf.
Ef barn er Rh-jákvætt og Coombs-próf
neikvætt er konunni gefið RH Immune
Globulin innan 72 klst. frá fæðingu
barnsins.
Rhesus-neikvæð og hefur ekki
myndað mótefni:
Stensla beiðni um blóðflokkun
merkta naflastrengsblóð sem er geymt
frammi á vakt.
Stensla tvo merkimiða sem eru hafð-
ir inni á fæðingastofu ásamt tveimur
32 ______________________________
reagens-glösum með töppum og
hönskum tilbúið til notkunar.
Sjá til þess að mæðraskrá sé vel
merkt með Rh-stimpli: á fremstu síðu,
á ,,partogrammið“.
Fyrir fylgjufæðingu skal þurrka fram-
an af enda naflastrengsins og láta
drjúpa 10 ml blóðs í hvort glas. Glösin
eru merkt inni á fæðingastofunni!
Ljósmóðir fylgir því eftir að beiðni sé
útfyllt og gengið frá sýninu (öðru glas-
inu), þannig að það sé tilbúið til að fara
í Blóðbankann til flokkunar með næstu
ferð. Ath! þarf ekki að sendast með
hraði. Hitt glasið skal geyma á fæðinga-
vakt til vara í a.m.k. 3 sólarhringa, en
er síðan hent.
Á beiðni til Blóðbankans er merkt
við eftirfarandi:
ABO-flokkun.
Rh-flokkun.
Coombs-próf beint.
Einnig þarf að koma fram:
Dagsetning fæðingar.
Tími fæðingar.
Kyn barnsins.
Barnablaðið er merkt blóðflokki
móður og stimplað með Rh-stimpli.
Látið aðra ljósmóður yfirfara með ykk-
ur blóðflokkinn og kvittið fyrir.
Skrá í fæðingarsögu að blóðsýni hafi
verið tekið.
Við flutning á sængurkvennagang er
mikilvægt að tilkynna að konan sé
Rhesus-neikvæð.
Rhesus-neikvæð og hefur
myndað mótefni:
Þetta á einnig við um undirflokkamis-
ræmi, þó konan sé Rhesus-jákvæð.
Sömu reglur gilda og hér að ofan
_________________ I—IÓSMÆÐRABLAÐ1Ð