Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 36

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 36
fæðinguna, í sængurlegunni eða við brjóstagjöf. Aðrar sýkingar Flestar sýkingar geta valdið fóstur- skaða, fósturdauða og/eða staðbundn- um sýkingum hjá barni eftir því hver orsökin er. Þær eru flestar af völdum veira eða baktería. Hér á eftir eru þær algengustu taldar upp: Syphilis: Omeðhöndlað, smitast barnið á meðgöngu í 50—80% tilfella. Tekið er blóðsýni í fyrstu mæðraskoðun og meðhöndlað fyrir 15. viku. Lekandi: Konan er oft einkennalaus. Barn smit- ast af lekanda í 50% tilfella, ef konan fæðir eðlilega. Sýkingin fer í augu barns og veldur örmyndun í hornhimnu og blindu, ef þetta er ómeðhöndlað. Nú er tekið strok úr auga og sent í ræktun, ef barn hefur einkenni um augnsýk- ingu. Einkenni byrja á 2.-5. degi eftir fæðingu. Chlamydia Trachomatis: Barn getur smitast við fæðingu og fengið væga augnsýkingu, sem kemur í ljós 5—8 dögum eftir fæðingu. Einnig getur barnið fengið lungnabólgu. Talið er að aukin hætta sé á: Fyrirburafæðingu. Andvana fæðingu. Endometritis eftir fæðingu. Trichomonas Vaginalis: Einkennist af útferð sem er gulgræn og illa lyktandi, ásamt kláða og sviða. Ekki er vitað til þess að sýkingin valdi skaða. Candida Albicans: Um þriðjungur barnshafandi kvenna fá sveppasýkingu. Sýkingin einkennist af miklum kláða. Barn getur smitast við fæðingu, en alvarlegar sýkingar af völdum candida eru sjaldgæfar. Toxoplasmosis: Oft eru engin einkenni en stundum eins og almenn flensueinkenni. Konu sem smitast á meðgöngu er hætt við að: Missa fóstur. Fæða andvana barn. í 20—65% tilfella smitast fóstr- ið/barnið líka. Það fer eftir því hvenær á meðgöngunni móðirin veikist. 90% þeirra barna sem smitast, skaddast (heili, augu). Cytomegalovirus: Móðirin sýkist án einkenna, en sýk- ingin getur valdið alvarlegum skaða á miðtaugakerfi barnsins. Rauðir hundar: Ef móðir veikist á 1. trimestri veldur sýkingin alvarlegum fósturskaða (sjón, heyrn, hjarta). Listeria: Einkenni hjá fullorðnum eru oftast engin. Barn getur smitast og fengið staðbundnar sýkingar eða ,,sepsis“. 34 I__IÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.