Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 38
ICM-International
Coníedera tion of Midwives
Upplýsingarnar eru fengnar úr bæk-
lingi sem þessi samtök ljósmæðra hafa
gefið út svo og fréttabréfum þaðan.
Hvað er ICM?
Samtök ljósmæðrafélaga, frá
40—50 löndum víðs vegar að úr heim-
inum. Samtökunum er skipt í svæðis-
deildir sem eiga sína svæðisfulltrúa
(Regional Representatives). Afríka (2
fulltrúar), Ameríka (2), Evrópa (5), Asia
Pacific (2). Hvert aðildarfélag hefur síð-
an rétt til að senda 2 fulltrúa á ,,Inter-
national Council Meetings", sem
haldnir eru í sambandi við ráðstefn-
urnar.
Hvert er markmiðið?
Að bæta ljósmæðramenntun og
miðla þekkingu meðal ljósmæðra,
með það að markmiði að bæta umönn-
un barna, mæðra og feðra um allan
heim.
Hvað gerum við?
Við lítum á ljósmóðurina sem lykil-
persónu þegar um er að ræða umönn-
un kvenna og fjölskyldna þeirra á
tímabilinu kringum barnsfæðingu.
Við vinnum að því markmiði að
dauðsföllum meðal fæðandi kvenna
hafi fækkað um helming árið 2000.
Sérstakur vinnuhópur hefur verið starf-
andi frá árinu 1987 til að vinna að
þessu. Þar eru einnig fulltrúar frá
WHO og UNICEF. Reynt er að styrkja
stöðu ljósmæðra þannig að þær axli
meiri ábyrgð í heilbrigðisþjónustunni.
Höfð er samvinna við þau ljósmæðrafé-
lög sem tengjast ICM varðandi bætta
ljósmæðramenntun, hlutverk og starfs-
svið ljósmæðra, stjórnun og rann-
sóknaverkefni ljósmæðra. Safnað er
upplýsingum um þessi atriði, spurning-
um er svarað og upplýsingum miðlað, í
gegnum fréttabréf og í vinnuhópum.
Þar sem það er í þróunarlöndunum
sem 99% af mæðrum deyr beinist
hjálpin einkum að þeim félagsmönn-
um sem þar eru.
Þriðja hvert ár er haldið heimsþing
ljósmæðra, þangað sem koma ljós-
mæður hvaðanæva að úr heiminum.
Þingið er til skiptist í hinum ýmsu lönd-
um. Þannig var það í Bretlandi 1981,
Ástralíu 1984, 1987 í Hollandi og 1990 í
Japan. Næsta þing verður í Vancouver
í Kanada 1993. Síðan í Osló 1996. Milli
þinganna eru vinnuhópar (Workshops)
um málefni eins og „Ljósmóðirin —
lykillinn að öruggari fæðingu" (Hong
Kong 1989). „Rannsóknir og ljósmóð-
irin“ (Þýskaland 1989).
36
I—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ