Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 39

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 39
Hvers vegna þátttaka í ICM? Við bjóðum félögunum stuðning og ráð frá aðalstöðvunum, dreifum upplýs- ingum, veitum tækifæri til að læra af reynslu annarra og kynnast ljósmæðr- um á alþjóðagrundvelli. ICM er einu samtök ljósmæðra með opinbert sam- band við Sameinuðu þjóðirnar og und- irdeildir þeirra, svo sem WHO og UNICEF. Upplýsingabæklingur kemur út u.þ.b. 4 sinnum á ári og afsláttur býðst á tímaritinu Midwifery. ICM hef- ur í samráði við UNICEF gefið út bók- ina „Facts for Life“. ★ Sambandið við meðlimafélögin mætti vera meira og lýst er eftir áhuga- sömum fulltrúum. I stjórn ICM eru nú, hér nefndar með enskum titlum, Margaret Peters, Astralíu, Director of the Board of Management. Helga Schweitser, Þýskaland, Deputy Director of the Board of Management. Carol Hird, Canada, President. Sonja Irene Sjöli, Noregi, Vice President. Sumiko Mae- hara, Japan, Immediate Past Presi- dent. Anne Thompson, Englandi, Treasurer. Karin Christiani, Svíþjóð er fulltrúi Norðurlandanna (Regional Repre- sentative). Aðrir fulltrúar Evrópu eru frá Bretlandi, Sviss, Þýskalandi, Spáni. Skrifstofa samtakanna er í London. Skrifstofustjóri þar er Miss Joan Walker. Hún er ljósmóðir, sem einnig hefur lært kennslu og stjórnun. ★ Árgjald LMFÍ til ICM er GBP 390 fyr- ir árið 1991. Ljósmæður eru hér með hvattar til að líta inn á skrifstofunni ef þær hafa áhuga á að kynna sér frekar þessi samtök, sjá fréttabréf ICM eða bókina með fyrirlestrum frá síðasta al- þjóðaþingi, í Japan 1990. Þýtt og endursagt: Elín Hjartardóttir. GAMALT OG GOTT Óx brúðar kviðr frá brjósti niðr svo að gerðu eik gekk heldr keik og aum í vömb, gerðu eik: kona varð heldr til þömb. þömb: framsett Björn Hítdælakappi. 37 ljósmæðrablaðið

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.