Ljósmæðrablaðið - 01.11.1992, Side 8
BSRB varð 50 ára. Haldin var vegleg
hátíð af því tilefni í Borgarleikhúsinu.
LMFÍ ásamt öðrum aðildarfélögum
BSRB gaf hátalarakerfi.
Fulltrúi LMFÍ í stjórn BSRB er
Margrét Guðmundsdóttir. Hún er einnig
í jafnréttisnefnd á vegum BSRB. Akveðið
er að halda Vestnorræna kvennaráð-
stefnu á Egilsstöðum 20.-23. ágúst nk.
BSRB verður þar með bás til kynningar
á starfsemi sinna félaga.
LMFÍ barst frá kvikmyndafélaginu
„Útí hött-inn í mynd“ beiðni um styrk og/
eða faglega ráðgjöf til að gera tvö 15
mín. myndbönd um a) Meðganga og
undirbúningur fæðingar. b) Fæðingin
sjálf, fyrstu vikur eftir fæðinguna. Svar
stjórnarinnar var á þá leið að við fögnum
þessu framtaki, enda oft verið rætt meðal
ljósmæðra um þörf á slíku myndbandi.
Sögðum félagið reiðubúið til að veita
faglega ráðgjöf. Höfum svo ekki heyrt af
málinu síðan. Því miður hefur félagið ekki
fjármagn til að styrkja myndbandsgerðina
fjárhagslega.
Lífeyrissjóður ljósmæðra, sem stofn-
aður var með Iögum nr. 37/1938, hefur
til fjölda ára verið mjög lélegur. Ljós-
mæður hafa fengið greiddan úr honum
lífeyri frá 3 krónum og upp í 6.000.
Leitað hefur verið leiða til að bæta hag
þessara ljósmæðra. Var það gert með því
að skipa nýja stjórn sjóðsins. Hana skip-
uðu af hálfu LMFI Margrét Guðmunds-
dóttir og Dóra Sigfúsdóttir. Þetta hefur
kostað afar mikla vinnu og fundarsetu.
Fallist var á ósk LMFÍ um að leggja
lífeyrissjóðinn niður og að lífeyrisgreiðsl-
ur kæmu frá ríkissjóði. Meðfylgjandi er
bréf LMFÍ til fjármálaráðherra þar að lút-
andi og einnig frumvarp til laga, sem
samþykkt var 6. mai sl. Lögin taka gildi
um leið og þau hafa birst i Stjórnartíð-
indum.
Formannaskipti í LMFÍ
Á aðalfundi Ljósmæðrafélags Islands
þann 15. maí 1992 lét Margrét Guð-
mundsdóttir af formennsku í félaginu, en
hún hefur verið formaður þess frá mai
1989. Ljósmæður þakka henni vel unnin
störf í þágu félagsins og vonast til að
njóta starfa hennar áfram. Á aðal-
fundinum var kosinn nýr formaður
Ingibjörg S. Einisdóttir. Ingibjörg er fædd
í Njarðvík 30. ágúst 1956. Hún lauk B.S.
prófi í hjúkrun frá Háskóla íslands 1982,
M.S. prófi í fæðingarhjúkrun frá Russell
Sage College i Troy, New York 1986 og
prófi frá Ljósmæðraskóla íslands haustið
1990.
Hún hefur starfað við hjúkrun bæði
hérlendis og í Bandaríkjunum og kennt
hjúkrun við hjúkrunarskóla í Banda-
ríkjunum og Háskóla íslands. Hún starfar
nú á Kvennadeild Landspítalans og er
stundakennari við Ljósmæðraskóla Is-
lands.
Margrét Ingibjörg S.
Guömundsdóttir Einisdóttir
6
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ