Ljósmæðrablaðið - 01.11.1992, Blaðsíða 12
EVA S. EINARSDÓTTIR, ljósmóðir, kennslustjóri:
Ljósmæbraþankar
fluttir á aðalfundi Ljósmæðrafélags
íslands 15. maí 1992
Kæru ljósmæður!
Eg hef ákveðið að koma hér inn á
ýms málefni sem snerta starf okkar. En
ég hef mínar skoðanir á fæðingarhjálp og
öðru og læt þær í ljós þegar mér finnst
ástæða til, svo ég noti sömu orð og fyrsti
formaður Ljósmæðrafélagsins Þuríður
Bárðardóttir sú merka kona í grein sinni
undir heitinu „Ljómæðraþankar", sem
birtist í Ljósmæðrablaðinu 1. tbl. 1932:
Eitt af því fyrsta er þessi umræða um
öryggi tengt fæðingu en sú umræða felur
i sér þann boðskap að konum sé nánast
hvergi óhætt að fæða nema á hátækni-
sjúkrahúsi. Þessi umræða finnst mér vera
komin út fyrir öll mörk, hún stjórnar orð-
ið ákvörðunum starfsfólks sem annast
mæðraeftirlit, það þorir vart að taka
neina ákvörðun út frá eigin óskum og
vilja, ef þær geta valdið þeim streitu og
erfiðleikum, ekki síst hjá þeim sem búa
úti á landi. Og afleiðing streitu getur or-
sakað minna blóðflæði um leg og fylgju,
sem leiðir til minni súrefnisflutnings til
fósturs, og minnkun á súrefnisflutningi til
fósturs leiðir til streitu hjá fóstri, sem gæti
síðan t.d. leitt af sér grænt legvatn. Og
streita getur valdið þvi að konum er hætt-
ara við að ganga fram yfir tímann, og
streita verkar hamlandi á eðlilegan gang
fæðingar svo eitthvað sé nefnt. En það
má segja að fólki sé nánast fjarstýrt með
þessari umræðu, þessi boðskapur kemur
einnig í fjölmiðlum, t.d. lét heilbrigðisráð-
herra Sighvatur Björgvinsson þannig orð
falla í viðtali á stöð tvö í apríl og ein slík
grein birtist í Morgunblaðinu útbreiddasta
dagblaði landsins um mánaðarmótin
mars/apríl síðastliðin þar sem viðtal var
haft við prófessor Gunnlaug Snædal. Þar
var tilkomu Kvennadeildar að mestu
þakkað lækkun á ungbarnadauða í land-
inu. En það eru ýmsir aðrir þættir sem
vega þar ekki minna, ekki síst betra og
skipulagðara mæðraeftirlit um land allt.
Og svo er það tilkoma Vökudeildarinnar
til að taka við fyrirburum og börnum
kvenna, sem flokkast hafa í áhættuhópa,
ef með þarf, sem á þar stóran þátt. En
greining barnshafandi kvenna í áhættu-
hópa á sér stað í mæðraeftirlitinu og þær
konur eiga að fæða á sjúkrahúsi sem hef-
ur alla tækni til staðar.
Það má segja að þetta viðtal hafi ekki
komið á sérstaklega heppilegum tíma
þ.e. á sama tíma og tilkynnt var um
breytingar á starfsemi Fæðingaheimilis-
ins. En þessi sifellda umræða að tengja
að mestu lækkun á ungbarnadauða í
landinu tilkomu Kvennadeildar auðveldar
10
LJOSMÆÐRABLAÐIÐ