Ljósmæðrablaðið - 01.11.1992, Blaðsíða 27
ið fyrir verulegri heilaskemmd og lömun.
Með næringu í æð var henni haldið við
fram að 33 vikum. Barnið virtist dafna vel
á þeim tíma. Þá varð að gera neyðarkeis-
araskurð vegna skyndilegra öndunarerf-
iðleika og hjartastopps hjá konunni. Kon-
an lést en barni hennar tókst að bjarga
og hefur það þroskast eðlilega. Eitt barn
fæddist með hjartagalla (ventricular sept-
al op), sem gert var við með góðum ár-
angri og eitt barn var með blöðrunýra
öðru megin, sem var fjarlægt. Öll börn
fædd á Akureyri lifðu.
I meðgöngunum voru 30 konur
(35%) með meðgöngusykursýki eða skert
sykurþol (White flokkur A). Af þeim var
ein aðeins meðhöndluð með matarræð-
isbreytingum, en allar hinar fengu insúlín.
Með þekkta insúlínháða eða insúl-
ínóháða sykursýki fyrir meðgönguna
voru 56 (65%). Flokkun sykursýkinnar á
hinum tveim fimm ára tímabilum er sýnd
í Töflu 1. í 29 meðgöngum (33.7%) var
konan með alvarlegri fylgikvilla insúlín-
háðrar sykursýki (White flokkar D, F og
R).
Meðalaldur kvennanna við fæðingu
barnsins var 27,3 ár (bil 16-41) 1981-85
og 27,8 ár (bil 19-42) 1986-90. Með-
alfæðingarþyngd fyrra tímabilið var
3414 g (meðalfrávik 925 g, bil 1200-
5654 g) og hið síðara 3845 g (meðalfrá-
vik 653 g, bil 1935-5200 g) (t = 2.46;
P = 0,016). Meðalmeðgöngulengd var á
sarna tíma 263 dagar og 266 dagar
(t= 1,241, p>0,2).
A fyrra tímabilinu fæddu 16 konur
vaginalt (37%), þar af ein með framhjálp
(tangarfæðing). Af konum með með-
Söngusykursýki (A) fæddu tvær með á-
^etluðum og tvær með bráðakeisara-
skurði, hinar (71%) vaginalt. Sex af kon-
unum með sykursýki af flokki B eða al-
varlegri gerð fæddu vaginalt (21%). Tvær
af þessum konum voru með fóstur dáin
i móðurkviði en hinar með sykursýki af
flokki B.
A síðara tímabilinu fæddu 20 konur
vaginalt (44%) og þurfti framhjálp með
töng eða sogklukku hjá 3 þeirra.
Axlaklemma varð hjá tveim, þótt skaði af
því yrði ekki. Með keisaraskurði fæddu
24, þar af 6 með bráðaskurði (fyrirfram
ákveðnum keisaraskurði flýtt vegna með-
gönguvandamála). Hjá einni konu (White
flokkur D) var fæðing gangsett, en keis-
araskurður síðan gerður vegna lítils fram-
gangs fæðingar. Af konum með með-
göngusykursýki (A) fæddu 11 (69%) vag-
inalt, af þeim sem voru með með sykur-
sýki af flokki B eða alvarlegri gerð, fæddu
9 (32%) vaginalt en 19 með keisara-
skurði.
Allar fæðingar á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri voru með keisaraskurði.
Innlagnir hjá konum í flokki B og al-
varlegri formum voru að meðaltali 2,1
skipti (1-5) á fyrra tímabilinu og konurnar
voru innlagðar að meðaltali í 27 daga
(lengst samfellt í 55 daga) fyrir fæðing-
una. Á síðara tímabilinu var meðalfjöldi
innlagna 3,7 skipti (1-7), en meðaldval-
artími á spítala 20 dagar (lengst samfellt
51 dagur). Konan, sem fékk hypogly-
kemískt dá og alvarlegan heilaskaða var
ekki meðtalin á síðara tímabilinu. Hún
var nærð í æð í samfleytt 123 daga áður
en hún dó. Svo til öll börnin vistuðust
á Vökudeild til eftirlits í mislangan tima.
Umræða
Almennt hefur árangur meðferðar við
sykursýki í meðgöngu farið stöðugt batn-
andi á Islandi síðastliðin 17-18 ár. A
þessum tíma hefur burðarmálsdauði farið
ört lækkandi, en var áður fyrr hár. Til að
_________________________________ 25
VJÓSMÆÐRABLAÐIÐ