Ljósmæðrablaðið - 01.11.1992, Page 51
Athugasemdir
sem fylgdu frumvarpi til laga um að
leggja niður Lífeyrissjóð ljósmæðra
Það er að tillögu Ljósmæðrafélags ís-
lands að lagt er til með frumvarpi þessu
að leggja niður Lífeyrissjóð ljósmæðra.
Lífeyrissjóðurinn var stofnaður með
lögum nr. 86/1938.
Frumvarp um stofnun sjóðsins kom
fyrst fram á Alþingi á árinu 1933, flutt
af Vilmundi Jónssyni landlækni eftir
beiðni Ljósmæðrafélags íslands. Ekki
náði það fram að ganga þá en var end-
urflutt á þingi árið 1938 af fyrrnefndum
Vilmundi og Helga Jónassyni héraðs-
laekni og þá lögfest.
A þeim tíma var lítið um lífeyrissjóði.
Þó var til Lifeyrissjóður embættismanna
°9 ekkna þeirra sem stofnaður var 1921
°S nefndist síðar Lífeyrissjóður starfs-
rnanna rikisins. Einnig var til Lífeyrissjóð-
ur barnakennara og ekkna þeirra, stofn-
aður 1921, sem sameinaður var Lífeyr-
issjóði starfsmanna ríkisins 1980. Fátt
var um aðra lífeyrissjóði. Lífeyrissjóður
bjúkrunarkvenna var til dæmis ekki stofn-
aður fyrr en árið 1943.
Lögunum um Lífeyrissjóð ljósmæðra
befur ekki verið breytt frá setningu þeirra
1038 nema að smávægilegar breytingar
voru gerðar með lögum nr. 114/1940.
Lífeyrissjóður ljósmæðra tók til allra
logskipaðra ljósmæðra nema þeirra sem
störfuðu í bæjum og voru tryggð þar
sömu eftirlaun og öðrum föstum starfs-
mönnum bæjanna. Þá tók sjóðurinn
heldur ekki til þeirra ljósmæðra sem
störfuðu við fæðingardeild Landspítal-
ans.
Með lögskipuðum ljósmæðrum var
átt við þær ljósmæður, sem skipaðar
voru til að gegna ljósmóðurumdæmum
samkvæmt ljósmæðralögum nr. 17/
1933. I öllum meginatriðum fylgdi skipt-
ing landsins í ljósmóðurumdæmi hreppa-
og kaupstaðamörkum svo að segja má að
ljósmóðir hafi verið í hverjum hreppi. Til
þessara ljósmæðra var Lífeyrissjóðnum
ætlað að taka. í greinargerð með lífeyr-
issjóðsfrumvarpinu 1933 er talið að þær
séu 198 talsins þá.
Þetta ljósmóðurumdæmakerfi var lagt
endanlega niður í árslok 1984 með lög-
um um heilbrigðisþjónustu nr. 59/1983.
Þessi starfsstétt, umdæmisljósmæður,
sem ein skyldi eiga aðild að Lífeyrissjóði
ljósmæðra, er ekki lengur til. Því er ekki
lengur um það að ræða að iðgjöld séu
greidd til sjóðsins eða að neinn sjóðsfé-
lagi ávinni sér þar frekari rétt en orðið er.
Réttindaákvæði laganna, óbreytt í
meir en hálfa öld, eru með nokkru öðru
sniði en nú tíðkast. Fyrir það fyrsta á-
vannst ekki neinn réttur til lífeyris fyrr en
eftir 15 ára starf sem umdæmisljósmóðir.
_________________________________ 49
LIÓSMÆÐRABLAÐIÐ