Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1995, Side 6

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1995, Side 6
Ritstjóraspjall Stórt skref hefur verið stigið í þróun ljósmæðramenntunar á Islandi. Stærsti þorri þess efnis sem birtist í blaðinu, í þetta sinn, er einmitt grein Ólafar Ástu Ólafsdóttur um nýja tilhögun ljósmæðramenntunar, frá og með næstu áramótum. Enn leggja ljósmæður land undir fót, í þetta sinn til Bretlands. Margrét Bjarnadóttir og Hildur Sigurðardóttir segja frá spennandi og fræðandi ráðstefnu um fæðingar í vatni. Þá ber að nefna efni frá fræðslunefnd LMFÍ um fyrirlesara á ljósmæðra- þinginu í maí s.l Eins og áður eru tillögur og ábend- ingar lesenda velkomnar, sem og eigið framlag til birtingar. Einnig væri gaman að fá línu frá ykkur lesendur góðir, lesendabréf, þar sem fram kemur viðhorf ykkar og skoðanir á efni sem birtst hefur í blaðinu: spurningar, ábendingar, gagnrýni eða hrós. Óska ykkur öllum Gleðilegra Jóla og farsældar á komandi ári! Ritstjóri Upplýsingfar til köfunda fræáigreina — Höfundar greina skulu skila handritum til ritnefndar Ljósmæðrablaðsins, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík, og áskilur nefndin sér rétt til að taka grein til birtingar eða hafna henni. — Þegar grein hefur verið samþykkt til birtingar skal greinarhöfundur skila efni hennar á tölvudisklingi, sem er merktur með nafni hans og titli greinarinnar. Öllum merktum disklingum verður skilað til eigenda sinna að notkun lokinni, sé þess óskað. — Ljósmæðrablaðið birtir greinar sem fjalla um ljósmóðurfræði eða greinar sem eiga erindi til ljósmæðra á einn eða annan hátt. Þ.e.: rannsóknir, endurskoðun og upprifjun fræðiefnis, og hugmyndafræðilega umfjöllun og hugleiðingar tengdar eða um ljósmóðurfræði. 4 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.