Ljósmæðrablaðið - 01.10.1995, Blaðsíða 14
Fræðslunefndin skipulagði fræðslu-
kvöld fyrir ljósmæður 18.sept.
síðastliðinn þar sem aðalumræðu-
efnið var, fræðsla til feðra á með-
göngu. Ljósmæður, sem hafa öllu
jafnan borið aðal ábyrgð á for-
eldrafræðslu á meðgöngu, hafa fundið
til ákveðins veikleika þegar kemur að
því að höfða til feðra sérstaklega. Það
var því mjög gagnlegt að hlusta á þá
þrjá fyrirlesara sem voru gestir þetta
kvöld.
Fyrstur tók til máls Göran
Wimmerström sem var staddur hér á
landi á vegum karlanefndar jafnréttis-
ráðs. Göran er svíi, sálfræðingur að
mennt auk þess að vera félagsráð-
gjafi. Göran hefur mikið unnið með
karla, sem stunda ofbeldi á heimilum,
með mjög góðum árangri. Göran er
einnig frumkvöðull að feðrafræðslu í
Svíþjóð. Árið 1990 stofnaði hann
sérstaka miðstöð fyrir karla, og í
meðgöngufeðrafræðslunni er hann í
góðri samvinnu við ijósmæður um
hvernig best er að haga fræðslunni.
Fræðsla feðranna fer aðallega fram í
lokuðum hópum þar sem eingöngu
eru karlmenn.Þar tjá þeir sig um
ýmsar tilfinningar sem þeir upplifa á
meðgöngutímanum, sem þeir hafa
ekki þorað að opinbera, aðallega
vegna þess að þeir halda að þeir eru
þeir einu með þessa upplifun. Þetta
gerir það að verkum að karlmaðurinn
situr uppi með samviskubit fyrir að
hugsa svona og karlmenn opna sig
ekki svo gjarnan við konuna því þeim
þykir nóg á hana lagt í þessu ferli.
Göran sagði það undravert hve lítið
karlmenn undirbúa sig fyrir feðra-
hlutverkið og hve lítið þeir ráðfæra sig
við hvor annan.
„Karlmenn tala ekki við feður sína
um væntanlegt föðurhlutverk og lesa
sig lítið til.“ sagði Göran. Með þvi að
leyfa þeim að tjá sig um líðan sína,
mögulega hræðslu, kvíða og jafnvel
reiði, ásamt því að fræða þá um flesta
þá þætti er varða konuna og sængur-
legutímabilið, nýburann og breytt
fjölskyldumynstur, er hægt að gera
væntingar feðranna raunhæfari og
gera þá betur undirbúna til að takast
á við þetta nýja vandasama hlutverk.
Göran hefur nú staðið fyrir menntun
fyrir menn til þess að sinna þessari
fræðslu víðs vegar um Svíþjóð og er
því sérstök feðrafræðsla að festa sig í
sessi í Svíþjóð.
Göran benti okkur á marga þætti sem
gagnlegt er fyrir okkur að skoða og
mikilvægt að fram komi í þeirri for-
eldrafræðslu sem við veitum.
Næstur tók til máls Jón Bjarni
Þorsteinsson heilsugæslulæknir á
Sólvangi í Hafnafirði. Hann fræddi
okkur um það að í foreldrafræðslunni
hjá þeim hafi alltaf verið sérstakir
„pabba tímar“ þar sem rætt er við
verðandi feður og ýmiss mál sem að
12
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ