Ljósmæðrablaðið - 01.10.1995, Blaðsíða 24
menntunarmálum hefur til langs tíma
verið sú að inntökuskilyrði í ljós-
móðurnám væri hjúkrunarpróf. Það
hefur einng verið stefna hjúkrunar-
fræðinga á íslandi að ljósmóðurnám
yrði framhaldsnám eftir hjúkrunar-
próf.
í febrúar 1991 skipaði mennta-
málaráðherra nefnd til að undirbúa
tillögur um fyrirkomulag ljósmæðra-
menntunar innan vébanda náms-
brautar í hjúkrunarfræði Nefndin
skilaði tillögum sínum til ráðu-
neytisins um haustið og lagði til að
ljósmóðurnám yrði 18 mánuðir eftir
hjúkrunarpróf og að það færi fram í
námbraut í hjúkrunarfræði. Tillaga
þessi er í samræmi við tilskipun
Evrópusambandsins frá 1980 um að
fullt nám í ljósmóðurfræði skuli vera
a.m.k. 18 mánuðir ef inntökuskilyrði
í námið er hjúkrunarpróf. Önnur leið
er möguleg samkvæmt tilskipunum
Evrópusambandsins, en hún er sú að
námið taki 3 ár eftir stúdentspróf.
Menntamálaráðuneytið tók aldrei
formlega afstöðu til niðurstöðu
nefndarinnar.
Aftur var stofnuð nefnd á vegum
menntamálaráðherra þann 29.
nóvember 1993. Hennar hlutverk var
að gera tillögur um flutning ljós-
móðurnáms frá heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneyti til menntamála-
ráðuneytis.
/ erindisbréfi stóð:
„ I störfum sínum skal nefndin taka
mið af því að menntun ljósmæðra
verði í tengslum við námsbraut í
hjúkrunarfræði við læknadeild
Háskóla íslands og að heildarnáms-
tími verði ekki að ráði lengri en
almennt hjúkrunarnám. Nefndinni er
ætlað fjalla um skipulag námsins í
meginatriðum og gera tillögur um
framkvæmdaþætti breytingarinnar, að
höfðu samráði við yfirstjórn Háskóla
íslands“.
(Menntmálaráðuneytið, I 994, bls. 2.)
í NEFNDINA VORU SKIPUÐ:
Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir
yfirljósmóðir Kvennadeild
Landspítalans.
Herdís Sveinsdóttir, dósent
námsbraut í hjúkrunarfræði.
Ingibjörg Magnúsdóttir,
skrifstofustjóri heilbrigðis og
tryggingarmálaráðuneyti.
Ólöf Asta Ólafsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri
Kvennadeild Landspítalans.
Reynir Tómas Geirsson, prófessor
Kvennadeild Landspítalans.
Stefán Stefánsson, deildarstjóri, í
menntamálaráðuneyti formaður
nefndarinnar.
22
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ