Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1995, Page 19

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1995, Page 19
rneðgöngunnni, fæðingunni og sængurlegunni stendur. Yfirleitt muna konur og karlar eftir ljós- mæðrum sínum. Til eru fjöldamargar reynslusögur þar sem foreldrar segja frá og muna, á jákvæðan og neikvæðan hátt, hvað ljósmóðurin sagði, gerði og hvernig framkoma hennar var. Sambandið sem myndast getur því haft áhrif í gegnum lífið og gæti stuðlað að jákvæðri sjálfsímynd og auknu sjálfsöryggi móður og föður f foreldrahlutverkinu. Margar ljós- mæður leggja áherslu á að yfirsetan sjálf sé mikilvæg til að skapa öryggi og traust hjá konunni en einnig til að bregðast við ef eitthvað ber út af hinu eðlilega fæðingarferli. Mikilvægt er að ljósmóðurfræði sé fyrst og fremst fyrir konuna og fjölskyldu hennar þar sem klínísk færni ljósmóðurinnar, fræðileg þekking, innsæi og til- finningar fara saman Hvað er að vera sönn ljósmóðir? Samkvæmt Flint (1986) verða sannar ljósmæður að vera sterkar, hlýjar og næmar fyrir þörfum konunnar og fjölskyldu hennar. Aðeins þá getur konan fundið sig örugga og upplifað barneign á einstakan og jákvæðan hátt. Ljósmæðrum ber einmitt skylda fil að skapa umhverfi þar sem konan og fjölskylda hennar upplifir örugga °g jákvæða reynslu í kringum harneign. Sannar ljósmæður verða að geta myndað náin tengsl við konu og skilið þarfir hennar. Flint (1986) segir að til þess að við ljósmæður getum það, verðum við fyrst, að kynnast og þykja vænt um konuna sem okkur stendur næst, okkur sjálfum. Efokkur tekst það má segja að við fáum jákvæðari sjálfsímynd og aukið sjálfs- öryggi til að starfa sem ljósmæður. Flint (1986) heldur áfram og segir að ljósmæður og konur séu nánar, það sem hafi áhrif á konuna hafi líka áhrif á ljósmóðurina og öfugt. Þegar ljós- mæður eru sterkar, eiga konur að geta fætt án utanaðkomandi truflana. Þegar ljósmæður eru veikar er hætta á að yfirráðin séu tekin af líkama konunnar og gripið sé inn í með- gönguna og fæðinguna, oft til skaða fyrir konuna og fjölskyldu hennar. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin skil- greinir hlutverk Ijósmóður þannig: Ljósmóðir er einstaklingur sem hefur lokið ljósmóðurnámi sem er viður- kennt í því landi þar sem námið er stundað. Hún hefur lokið náminu með viðunandi vitnisburði og hlotið löglegt leyfi viðkomandi yfirvalda til að stunda ljósmóðurstörf. Ljósmóðir þarf að geta séð um nauðsynlegt eftirlit, umönnun og ráðgjöf til kvenna á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu, stundað fæðingarhjálp á eigin ábyrgð og annast nýbura og ungbörn. Þessi ljósmæðrablaðið 17

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.