Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1995, Side 26

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1995, Side 26
Formlegt bréf kom frá mennta- málaráðherra þann 26. júní 1995 þar sem þess var farið á leit við rektor Háskóla íslands að á vegum náms- brautar í hjúkrunarfræði verði menntun ljósmæðra undirbúin með það fyrir augum að kennsla geti hafist í janúar 1996. Ein lektorsstaða og ein 37% staða í ljósmóðurfræði voru auglýstar í Morgunblaðinu. Umsóknarfrestur rann út 28. september. Umsóknir urðu tvær, ein um hvora stöðu. Skipaðar hafa verið dómnefndir til að taka afstöðu til hæfni umsækjenda. Nám í ljósmóðurfræði var auglýst í byrjun október 1995. Tekin voru viðtöl við alla 12 umsækjendur. Vegna takmarkaðrar aðstöðu til klínísks náms og starfsþjálfunar voru einungis 8 nemendur teknir í námið. Síðan 1982 þegar inntökuskilyrði í Ljósmæðraskóla íslands varð hjúkrunarpróf hafa að meðaltali 8 ljósmæður útskrifast ár hvert og virðist sá fjöldi fullnægja eftirspurn eftir ljósmæðrum í landinu. Val á nemendum lá fyrir 1. nóvember en sérstök inntökunefnd var skipuð til að taka endanlega ákvörðun um væntanlega nemendur. Hún vann samkvæmt leiðbeiningum sem sam- þykktar voru af námsbrautarstjórn og háskólaráði. Unnið hefur verið að þróun námskrár 24 í ljósmóðurfræði og liggja nú fyrir drög til samþykktar á fundi stjórnar námsbrautar í hjúkrunarfræði í desember 1995. Nám í ljósmóðurfræði - Skipulag Eins og fram hefur komið hefst nám í ljósmóðurfræði um næstu áramót. Það mun taka 18 mánuði og skiptist í tvo hluta. Annars vegar 24 eininga fræðilegt og klínískt nám, samtals 6 mánuðir og hins vegar 12 mánaða starfsþjálfun á heilbrigðisstofnunum. Áætlað er að hefja kennslu 15. janúar 1996. Kenndar verða 16 einingar á vormisseri og 8 einingar á haust- misseri 1996, með sumarleyfi á milli. Ráðgert er að starfsþjálfun hefjist í nóvember 1996 á heilbrigðisstof- nunum, að stærstum hluta á kvenna- deild Landspítalans en einnig á heilsugæslustofnunum og minni fæðingardeildum út um land. I lok starfsþjálfunartímans verða haldin skrifleg og munnleg lokapróf í ljós- móðurfræði. Frœðilegt og klínískt nám í Ijós- móðurfróiði skiptist í: 1. FYRRI HLUTA Vormisseri 1996 Vægi/ tími. Inngangur að ljósmóðurfræði 3 einingar. _______________ LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.