Ljósmæðrablaðið - 15.05.1998, Síða 10
Stjómavfundur NJF 1997
Árlegur stjórnarfundur Norður-
landasamtaka Ijósmæðra var
haldinn í Stokkhólmi 23.-25.
maí 1997. Á fundinn mættu
fyrir hönd Ljósmæðrafélags Is-
lands Ástþóra Kristinsdóttir og
Hildur Kristjánsdóttir.
Það voru 2 fulltrúar frá öllum
aðildarlöndunum nema Svíþjóð
sem hafði 3 fulltrúa og ritara
sem gestgjafi. Að þessu sinni
sá engin ljósmóðir frá Færeyj-
um sér fært að koma. Gengið
var til dagskrár að venju og
fylgir hér á eftir útdráttur úr
skýrslum stjórna ljósmæðrafél-
aganna og helstu atriða sem
rædd voru á fundinum.
Sk-ýt'sla forsela
N orðurlandasamlakanna
Beríl Holter
Hún sagði frá undirbúningi
námsdaga í Noregi í október um
gæðaeftirlit í ljósmóðurstarfinu.
Hún reyndi að fá styrk frá Nor-
rænu ráðherranefndinni án árang-
urs því miður.
Einnig sagði hún frá framvindu
skráningar á sögu Norrænu sam-
takanna, en stefnt er að því að
verkið verði gefið út í tengslum
við 50 ára afmæli samtakanna ár-
ið 2000.
Hún upplýsti að í Noregi voru
árið 1996 starfandi 97 ljósmæður
frá öðrum Efnahagsbandalags-
löndum.
Neest 9ar farið ýfii' sk'Jt'slur
landanna.
Danmörk
Áætlað er að í haust líti dagsins
ljós ný handbók fyrir ljósmæður. I
henni er fjallað ítarlega um
ábyrgðarsvið, réttindi og starfvett-
vang ljósmæðra. Ennfremur er
þetta handbók um þjónustu til
verðandi foreldra.
Umræður eru um mæðravernd-
ina og er meðal annars fjallað um
einstaklingsskoðanir og hópskoð-
anir. Mælt er með að hver fjöl-
byrja komi að minnsta kosti 5
sinnum í mæðravernd á með-
göngunni og frumbyrjur að
minnsta kosti 7 sinnum.
Einnig er fjallað um fóstur/ný-
buramörkin og að lækka þau úr 28
vikum í 22 vikur. Varðandi
fóstureyðingar er rætt um frjálst
val konunnar að 12. viku með-
göngu en ákvörðun í samráði við
kvensjúkdómalækni og eða ein-
hvern hóp eftir 12. Umræðan er
líka um að efri mörk fóstur-
eyðingar verði við 22. viku, en í
dag eru engin fastákveðin efri
mörk.
Varðandi fæðingarþjónustuna er
tilhneiging til að skipta stóru
fæðingarstöðunum í minni eining-
ar og sem dæmi má nefna að
fæðingardeildinni í Árhus með
u.þ.b. 4.500 fæðingar á ári hefur
verið skipt í 3 sjálfstæðar eining-
ar. Ekki er mikill munur á eining-
unum og starfsfólk er fastráðið á
hverja einingu fyrir sig, roterar
ekki!
Finnland
I Finnlandi er 13,8% atvinnu-
leysi. Þar er einnig verið að koma
hjúkrunar og ljósmæðramenntun á
háskólastig. Umræða er um Mast-
ernám, sem þeim finnst heldur
óljós og spurning í raun hvort/-
hvað er verið að ræða um. Er e.t.v.
eingöngu átt við þá/þær sem hafa
áhuga á rannsóknum. Þetta er nýr
hópur innan félagsins.
Vinnuhópur um handbók fyrir
mæðravernd hefur aftur tekið til
starfa vegna þess að í þeim fyrri
var engin ljósmóðir og umfjöllun
um hlutverk ljósmæðra í mæðra-
vernd var engin.
Noregur
Stjórn Ljósmæðrafélagsins í
Noregi hefur af því áhyggjur að
nýútskrifaðar ljómæður þar í landi
hafa mikla teorítiska þekkingu en
lélegur staðall er á verklegri hæfni
þeirra.
Ljósmæður á deildum sem taka
að sér að handleiða og kenna ljós-
mæðranemum í verknámi fá enga
greiðslu fyrir það, meðan greitt er
fyrir kennslu til læknaneina.
í ráði er að nám í ómskoðun
hefjist í Noregi fljótlega. Búið er
að gera ráð fyrir þessu á fjárlög-
um og búið er að auglýsa stöðu
umsjónarkennara. Námið mun
standa í eitt ár og af því eru 8
vikur bóknám. Gert er ráð fyrir að
ljósmæður sein stunda námið
þurfi að gera 1000 ómskoðanir en
læknar 500.
Sagt var frá fjármálum félagsins
vegna Alþjóðaráðstefnu ljós-
mæðra í Osló 1996.
Búið er að flokka fæðingarein-
ingar í landinu niður eftir þjón-
ustustigum. Á neðsta stigi eru
Fæðingastofurnar, þar eru ljós-
mæður og heimilislæknar, næst
koma fæðingadeildar með u.þ.b.
500 fæðingar á ári, með skurð-
lækni sem gengur vaktir og efst
eru svo deildir sem hafa aðgang
að allri sérfræðiþjónustu.
Meðan á fundi okkar stóð í
Stokkhómi var formaður Norska
ljósmæðrafélagsins önnum kafin í
Osló við að semja um kaup og
kjör fyrir sitt fólk en í félaginu eru
um það bil 1400 félagar nú.
10
LJÓSMÆÐRADLAÐIP