Ljósmæðrablaðið - 15.05.1998, Side 12
og umræða um þessi stóru mál
hafin í litlum hópum.
Þegar stórt er spurt verður oft
fátt um svör, en umræðurnar voru
fróðlegar og ýmislegt sem bar á
góma sem ekki verða gerð frekari
skil hér.
NJF ráðstefnan árið 2000
Ráðstefnan verður haldin í Sví-
þjóð en NJF á 50 ára afmæli þetta
ár. Spurningin er um þema fyrir
ráðstefnuna og eru tillögur vel
þegnar.
Fyrstu viðbrögð eru umræða um
samfellu í þjónustu til kvenna
ennfremur valmöguleikar og
ábyrgð kvennanna sjálfra.
Saga NJF
Rætt um vinnufyrirkomulag
hvers lands við uppsetningu og
samningu bókarinnar. Ennfremur
rætt um fjármál viðkomandi
útgáfunni.
ICFf
Samtökin vilja fá skýrslu frá
hverju svæði 3svar á ári, 1. maí,
1. sept. og 1. jan..
Umræður urðu nokkrar um þetta
og fleira viðkomandi ICM.
Tillaga kom frá Danmörku um
að forseti NJF væri ekki sjálfkjör-
inn ICM fulltrúi. Hinsvegar hafi
ICM fulltrúinn rétt til að sitja
fundi NJF. Þetta er fyrirkomulagið
sem var og munu félögin skoða
þetta mál fram að næsta stjórnar-
fundi.
Stjómarfundur 199S
Verður haldinn í Kaupmanna-
höfn næsta vor.
NJF ráðstefnan 2003-2004
Færeyjar eða Island eru næst í
röðinni.
Ulla Waldenström var gestur
fundarins síðasta morguninn og
sagði hún okkur frá Prófessors-
stöðu sinni í Ástralíu og kynnti
framhaldsnámsmöguleika
ljósmæðra þar.
Reykjavík febrúar 1998.
Hildur Kristjánsdóttir.
Ástþóra Kristinsdóttir.
Bankastjorar
í fædingu
Nýtt líf!
Sú góða tilfinning sem fylgir því að geta sinnt
bankaviðskiptum sínum í næði þegar manni
hentar best, óháð afgreiðslutíma og erli
hefðbundinna bankaútibúa er eins og að hefja
nýtt líf. Enda fjölgar bankastjórum í
Ileimabankanum stöðugt. Heimabankastjórar
geta sinnt sínum bankaviðskiptum heima eða í
vinnunni, hérlendis eða erlendis þar sem
netaðgang er að finna, á öllum tímum
sólarhringsins. Þeir spara sér ótal ferðir til og
frá banka, eru alltaf með bókhaldið á hreinu
og geta treyst á fullkomið öryggi og leynd
upplýsinga í Heimabankanum.
Það kostar aðeins 80 krónur
á mánuði að reka sitt eigið
útibú í Heimabankanum!
Byrjaðu nýtt líf strax
- en prófaðu samt fyrst!
Kynntu þér sýnishom af Heimabankanum á
www.isbank.is. Þar getur þú prófað hvernig
það er að stjórna eigin útibúi áður en þú
ákveður þig. Heimabanki íslandsbanka er svo
aðgengilegur að bankaviðskipti verða hreinn
barnaleikur.
C
•sm
ISLANDSBANKI
12
UÓSMÆPRABLAÐIP