Ljósmæðrablaðið - 15.05.1998, Blaðsíða 27
Heimaþjónusta - Ttyggingar
Hugleiðing Oegna greinar í Ljósmaeðrablaðinu.
Vegna greinar í síðasta Ljósmæðrablaði þar sem fjallað er um málaferli gegn bresku ljósmóðurinni Caroline
Flint hef ég verið að velta fyrir mér hvernig tryggingamálum sjálfstætt starfandi ljósmæðra er háttað.
Samkvæmt nýjustu tölum frá Kvennadeild Landspítalans hefur heimaþjónusta ljósmæðra aukist jafnt og þétt
frá ári til árs og milli áranna '96 og '97 er auking um 50-60%. Ekki er ólíklegt að enn fjölgi þeim sem vilja
nýta sér þessa þjónustu.
Þessi starfsemi er verktakastarfsemi og hljóta ljósmæður að þurfa að hugsa sinn gang gagnvart hugsanlegum
kærum og e.t.v. málssókn. Ekki þurfa kröfur að vera háar til að ljósmóðir geti lent í verulegum vanda við að
greiða þær, því ekki eru ljósmóðurlaunin svo há.
Nýverið féll dómur í hæstarétti í máli þar sem, að mati dómsins, höfðu átt sér stað mistök í sængurlegu. En
sængurlega er einmitt það sem heimaþjónustan snýst aðallega um. Eins og umræðan er í dag gæti sú staða al-
veg komið upp að ljósmóðir í heimaþjónustu fái á sig kæru jafnvel málssókn.
Tryggingafélög hafa boðið upp á tryggingu fyrir sjálfstætt starfandi ljósmæður og vitna ég í tilboð frá einu
þeirra. Tilboðið hljóðaði upp á vátryggingarupphæð að kr. 75.000.000 með 10% sjálfsábyrgð að lágmarki
20.000 og hámarki 200.000 og kostar þessi trygging kr. 4.570 á ári þegar reiknaður hefur verið inn afsláttur.
Það gera kr. 376 á mánuði og munar lítið um að borga það enda tryggt að ekki þurfi að leggja himili sitt að
veði komi til málssóknar.
Þær ljósmæður sem eru sjálfstætt starfandi að hluta eða öllu leiti eru einar ábyrgar þ.e. engin stofnun á bakvið
þær og ég tel ekki spurningu að það er nauðsynlegt að hafa tryggingu.
Með kveðju,
Ólafía Margrét Guðmundsdóttir Ljósmóðir á fæðingadeild Lsp.
Tóbaksvarnir - heilbrigt þjóðfélag
„Hlutverk heilbrigðisstarfsmanna í tóbaksvörnum"
Ráðstefna á vegum Heilbrigðisstofnunarinnar Egilsstöðum
og Krabbameinsfélags Héraðssvasðis.
Staður: Menntaskólinn á Egilsstöðum.
Tímasetning: 21 - 22. ágúst 1998.
Markhópur: íslenskir læknar, tannlæknar, hjúkrunarfræðingar, Ijósmæður og aðrir
heilbrigðisstarfsmenn.
Tungumál ráðstefnunnar: íslenska og enska.
Dagskrá ráðstefnunnar verður auglýst nánar síðar, en upplýsingar veitir Auður
Ingólfsdóttir í ráðstefnudeild Ferðaskrifstofu íslands í síma: 562 3300, tölvufang:
auduri@ith.is
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
27