Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 23

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 23
Jóga hjálpar við verkjum og óþægindum sem óneitanlega fylgja meðgöngunni, svo sem bakverkjum, stirðleika, bólgnum fótum, þungum andardrætti, þreytu og jafnvel þunglyndi. Þótt konan hafi aldrei stundað jóga áður, er meðgangan kjörið tækifæri til þess að byrja á því. Með reglulegri ástundun styrkist líkaminn og þol og liðleiki eykst. í jóga fyrir barnshafandi konur er sérstaklega unnið að því að fá góða líkamsstöðu, styrkja bakið, liðka axlir og opna brjóstkassann. ÖNDUNIN Mikil áhersla er lögð á öndun og slökun. Konan finnur jaínvægi milli styrks og liðleika, milli úthalds og eftirgjafar. Slakur líkami verður sterkur, mýktin hinn sanni sfyrkur. Við batnandi meðvitund og djúpslökun endurnærist orkan. Það mætti líkja áhrifunum af jóga við innri hreingerningu. Þegar hin barnshafandi kona finnur hvernig hún getur, bókstaflega andað frá sér spennu og þreytu styrkist sjálfstraust hennar gagnvart fæðingunni, hún finnur að hún getur sjálf haft áhrif á eigin líðan. Þegar hægist á önduninni hægist á innra skvaldri hugans. Þannig dregur jóga ástundunin úr spennu og áhyggjum móðurinnar á meðgöngunni, styrkir hana andlega, bætir sjálfsmyndina og þar með öryggi hennar. Menntun styrkir og slær á fordóma. Bóklestur og fræðileg vitneskja er auðvitað af hinu góða en mikilvægt er að æfa öndunina til þess að hún nýtist í fæðingunni. í jóga er það hin reglulega ástundun sem öllu máli skiptir. LÆKNASTÉTT - SJÁLFSTRAUST Jóga lofar ekki fullkominni fæðingu, enda getur enginn lofað neinu um þetta kraftaverkaferli sem hver meðganga og fæðing er. Við vitum að mikið getur gengið á, hlutimirað fara að bera ábyrgð á. Svo má ekki gleyma því að allt sem gert er fyrir konuna sjálfa á meðgöngunni hefur áhrif á barnið. í jóga fyrir bamshafandi konur leggjum við áherslu á að konan tengi við barnið, við stöldrum við og höldum um kviðinn, tölum við fóstrið, sendum því góðar hugsanir, ást og öryggi. Barnið er ekki framandi hnöttur sem hangir framan á konunni heldur manneskja, sál sem konan getur þegar byrjað að tengjast. Samvinnan er þegar hafin á meðgöngunni og svo er fæðingin samvinna konunnar og bamsins. Konan er ekki ein að þjást í tilgangsleysi, hver verkur hefur sína ástæðu og ef vel er hugsað til barnsins léttir það á. SPEGILL Jóga er eins og spegill sem hvetur okkur til að sjá okkur sjálf eins og við erum í raun og vem en ekki eins og við viljum vera eða ættum að vera. Það eru ekki alltaf aðstæður sem eru erfiðastar, eitthvað sem kemur fyrir okkur, einhver líðan sem einhver annar veldur, heldur viðbrögð okkar sjálfra sem skipta sköpum um hvernig okkur líður, hvernig við komumst í gegnum eitthvert atvik eða samskipti. Ljósmæður vita sjálfsagt manna best að konur bregðast mjög mismunandi við svipuðum aðstæðum. Jóga endumærir orku líkamans og hjálpar að slaka á og koma okkurí rólegt og friðsælt ástand. Að kunna að slaka á milli hríða er auðvitað mjög mikilvægt. Og þegar konan kann djúpslökun hefur hún áhrif inn í sjálfar hríðimar, hvemig konan tekst á við þær. í stað þess að berjast gegn þeim getur hún leyft þeim að vera og er ekki að reyna að hugsa um eitthvað annað en að flæða í gegnum þær. En fceðing er ekki sjúkdómur heldur eðlilegur hluti af náttúrunni. Það fœðir enginn fyrir okkur. Hverfœðing er því einstök eins og hvert okkar er einstakt. Þess vegna er svo mikilvœgt að konan sé með í að taka ákvarðanir og axla ábyrgð á eigin heilsu og undirbúningi fœðingarinnar. HVER ER ÉG? í jóga fyrir barnshafandi konur eru hefðbundnar jógastöður lagaðar að ástandi kvennanna og þörfum. Jógastöðurnar eru kallaðar ASANAS. Þeim er oftast haldið nokkurn tíma og þannig losnar um spennu og líkaminn sfyrkist. Á meðan stöðunni er haldið er konan hvött til að skoða hvað er að gerast. "Hvernig mætir þú fyrirstöðu, langar þig til að berjast, gráta, Ljósmæðrablaðið o 1. nóv 2001

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.