Ljósmæðrablaðið - 15.11.2001, Qupperneq 30
Grein um 2 ljósmæður sem hófu um síðustu
áramót eigin rekstur undir nafninu
"Mamastork". Þær taka hvor um sig 3 konur
á tíma í sama mánuði. Þær fara í 7-10
heimsóknir til skoðunar á meðgöngunni, taka
á móti barninu heima, hringja í konuna á
hveijum degi eftir fæðingu í viku og heimsækja
hana tvisvar. Svo er símtal eftir 1-2 mánuði.
Þær segja engan hörgul á konum og að kerfið
stuðli að betra fæðingarumhverfi fyrir konuna
og betra vinnuumhverfi fyrir ljósmóðurina.
Þær fá að meðaltali sem svarar 150.000
íslenskum krónum fyrir fæðinguna.
Nýjar launatöflur sýna að danskar ljósmæður
fá laun sem eru samsvarandi 180.000-345.000
íslenskum krónum á mánuði brúttó. Þetta eru
svimandi upphæðir í augum íslenskra ljós-
mæðra og áhugasömum er bent á fjölda atvinnu
auglýsinga í danska ljósmæðrablaðinu.
Maíhefti 2001:
Greinar um lífefnabanka sem verið er að
reyna að setja á fót á háskólasjúkrahúsi
Álaborgar. Tekið er naflastrengsblóð við
fæðinguna og það fryst. Fyrirhugað er, ef bamið
seinna meir fær sjúkdóma eins og hvítblæði,
sykursýki, Parkinson, blóð eða mergtruflanir,
að hægt verði að nota stofnfrumur úr þessu
blóði til lækningar viðkomandi. í raun hefur
naflastrengsblóði verið safhað og fryst síðustu
ár. Það sem hefur þurft til er ósk mæðra sem
síðan hafa keypt ílát. Ljósmæður hafa síðan
tekið blóðið en mæðurnar þurfa síðan að sjá
til þess að blóðið berist á rannsóknarstofuna
innan 24 klst.
—o—
Ljósmóðir skrifar grein um 3ja daga
námskeið sem hún fór á til að læra hvernig
hún ætti að leiða ljósmæðranema gegnum
verklegt nám. Kveðst hún eftir 12 ára starf
hafa viljað fara fýrr á svona námskeið en þau
eru haldin reglulega í Danmörku.
Grein um brjóstagjöf eftir skurðaðgerðir á
brjóstum. Konur sem hafa látið minnka eða
stækka bijóstin geta fræðilega séð haft á bijósti
ef taugar til vörtu og mjólkurgangar eru
óskaðaðir. í raunveruleikanum hefur hvatning
heilbrigðisstarfsfólks til brjóstagjafarinnar
úrslitaáhrif.
MJALTAVÉLALEIGAN GARÚN
Melgerði 44 , Kópavogi sími 564 1451
opið 11-17 virka daga
Medela dælur eru með innbyggðan
sogtakt og líkja eftir sogi barnsins.
• Sjúga
• Sleppa
• Hvíla adiri breastbottlc
Þær skemma því ekki né særa viðkvæman brjóstvef
Sogkraftur innan öryggismarka
Utan onnunartíma er hægt að fá vélar leigðar eftir samkomulagi í síma 694-3844
Medela og Lansinoh vörur fást einnig í Lyfju, Lyf og heilsu og apótekum um land allt