Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2001, Page 32

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2001, Page 32
Hvað ber að gera þegar þunguð kona hringir og telur að hún hafi verið útsettfyrir parvóveiru ? Fyrstþarf að athuga hvort hún hafi merki um gamla sýkingu og þar með verndandi mótefni. mótefnamyndun og blóðleysi fósturs af völdum þess. Fósturbjúgur sem ekki er vegna mótefnamyndunar (non-immune hydrops) einkennist af mikilli vökvasöfnun í tveimur eða fleiri líkamsholum. Bjúgur kemur fram í fleiðruholi, kvið og hjarta, vökvasöfnun verður undir húð, hjartað stækkar, einnig lifur og milta, og fylgjan verður þykk og bjúgkennd. Parvósýking er einnig talin auka líkur á fósturgöllum en Katz og félagar lýstu kölkun í milta, vægu vatnshöfði (hydrocephalus) og drepi í hjartavöða, sem talið er vegna beinna áhrifa á veirunnar á þessi líffæri.(5) Mótefni gegn parvóveiru. Hvað ber að gera þegar þunguð kona hringir og telur að hún hafi verið útsett fyrir parvóveiru ? Fyrst þarf að athuga hvort hún hafi merki um gamla sýkingu og þar með verndandi mótefni. Ef IgG mótefni eru til staðar en engin IgM mótefni er það merki um gamla sýkingu og fóstrinu er engin hætta búin. Ef hins vegar engin mótefni eru til staðar þarf að endurtaka mótefnamælingu eftir 2-3 vikur, til að kanna hvort ný sýking hafi átt sér stað. Ef IgG og IgM mótefni eru áfram neikvæð hefur konan ekki smitast og fóstrið er ekki í hættu. Hinsvegar er hún næm fyrir nýrri sýkingu og ætti því að forðast nýtt smit eftir bestu getu. Ef IgG og IgM mótefni eru bæði jákvæð er um nýja sýkingu að ræða og hætta er á myndun fósturbjúgs.IgM mótefni koma fram á þriðja degi eftir að úbrot hefjast en IgG um það bil viku síðar. IgM mótefnin hverfa á nokkrum mánuðum en IgG mótefnin eru til staðar fyrir 'lífstíð. Ekki er vitað hversu hátt hlutfall fullorðinna einstaklinga á íslandi hefur verndandi mótefni gegn parvóveirunni en víða erlendis er hlutfallið um 50%.(6) Ef einstaklingur án mótefna er útsettur fyrir parvóveirunni eru helmingslíkur á smiti ef smitberinn er innan fjölskyldunnar en fyrir leikskólakennara eru líkur á smiti um 20-50%.(7) Ef miðað er við 4000 þunganir árlega á íslandi og helmingur kvenna hefur ekki verndandi mótefni má búast við að helmingur þeirra geti smitast af parvóveiru á meðgöngu eða 1000 konur. Sú tala er vafalaust ofmetin því ekki verða allar þungaðar konur útsettar fyrir veirunni. Af 1000 smituðum má búast við 300 fóstursýkingum (30%) og þar af má búast við að 3% fái fósturbjúg eða níu fóstur. Vitað er um nokkur tilfelli af fósturlátum á öðrum þriðjungi meðgöngu á síðasta vetri í kjölfar staðfestrar parvósýkingar en heildarsýn vantar. í fyrsta lagi er ekki vitað hve stór hluti samfélagsins hefur mótefni gegn parvóveiru og í öðru lagi er ekki vitað hve stór hluti kvenna sem var grunaður um parvósýkingu á meðgöngu fór í mótefnamælingu. IgG neikvæð IgM neikvæð Endurtaka mótefni eftir 2-3 vikur i \ Neikvæð I TAFLA 1. Eftirlit með þunguðum konum sem útsettar eru fyrir parvoveiru B19. Útsett fyrir parvoveiru B19 Flensulík einkenni, útbrot, liðbólgur, Kanna parvóveirumótefni, IgG og IgM i IgG jákvæð IgM jákvæð ‘ i Ný sýking Fóstur í áhættu IgG jákvæð IgM neikvæð Merki um eldri sýkingu Jákvæð / Engin áhætta fyrir fóstur Engin áhætta Fóstur í fyrir fóstur áhættu ^ Fóstureftirlit Vikuleg ómskoðun í 8-10 vikur Fósturbjúgur Já Nei Blóðgjöf ■*’**"" Ekkert frekara eftirlit Ljósmæðrablaðið nóv 2001

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.