Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2001, Side 36

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2001, Side 36
Könnun var gerð á vegum LMFI á sýkingarhœttu á meðal Ijósmœðra. Könnunin sýndi að flestar Ijósmœður eru í mikilli sýkingarhœttu vegna snertingar við blóð og legvatn. einnig verið heimasíðu félagsins um nokkurt skeið. Breytingarnar vera lagðar fram til samþykktar á fundinum. Þær sem unnið hafa að þessum breytingum ásamt stjórn félagsins eru Kristín Sigurðardóttir, Anna Guðný Bjömsdóttir og Helga Gottífeðsdóttir. Sumarbústaðurinn okkar nýi hefur verið vel nýttur allt árið og ljósmæður ánægðar með hann. Kjarrhús heitir bústaðurinn okkar frá fomu fari og spurning hvort ljósmæðmm þyki það ekki bara gott nafn til að nota áfram. Haldið var upp á fimm ára afmæli háskólans í ljósmóðurfræðum, nú í byrjun apríl. Það var gert með vel sóttum fundi þar sem framtíð ljósmóðurnáms og þjónustu var rædd. Mikil umræða var þar um breytingar á náminu á næstu 10 árum og er í umræðunni að taka inn nema án hjúkrunarfræðiprófs. Mikil vandræði hafa veri að manna minni fæðingarstaði á landsbyggðinni undanfarið og hefur formaður og stjóm félagsins af því þungar áhyggjur. Þær ljósmæður sem hafa hug á að leysa af úti á landi vinsamlega hafi samband við félagið og láti vita af sér. Besterefhægt væri að skipuleggja afleysingateymi fyrir landsbyggina sem hægt væri að ganga að hveiju sinni. Á ísafirði stefndi í vandræðaástand vegna ljósmæðraskorts um áramótin. Formaður LMFÍ bauðst til að hjálpa til við að manna þessa mánuði. Ljósmæður brugðust skjótt við beiðninni og tjölmargar ljósmæður hafa leyst þar af á vormánuðum og aldrei verið ljósmóðurlaust þar á þeim tíma. Könnun var gerð á vegum LMFÍ á sýkingarhættu á meðal ljósmæðra. Könnunin sýndi að flestar ljósmæður eru í mikilli sýkingarhættu vegna snertingar við blóð og legvatn. Félagið hvetur ljósmæður til að fylgjast með eigin mótefnamyndun og nýta sér ókeypis bólusetningu fýrir lifrarbólgu B vírus, en því hafa þær rétt frá sínum vinnuveitendum. Libero bókin var illfáanleg um tíma vegna breytinga á umboðsaðilum. Heildsalan Frigg sér nú um dreifingu á bókinni. Ekki er alveg frágengið hvemig verður um framhald útgáfu bókarinnar. Umboðsaðilar hafa óskað eftir að fá að gefa auglýsingu með hverri bók. Málið er bistöðu. Umræður hafa orðið vegna mismunar á úthlutun heimaþjónustu. Var haldinn félagsfundur um málið þar sem því miður alltof fáar ljósmæður mættu. Félagið hefur unnið að málinu með deildarstjóra Hreiðursins. Stjóm félagsins vekur athygli á því enn og aftur að allar ljósmæður hafa samkvæmt ljósmæðralögum rétt til að taka heimaþjónustu hafi þær áhuga á því. Munum það ljósmæður að við erum að veita þjónustu sem hefur gengið mjög vel og við viljum að orðstýr okkar sé góður. Veitum því samfellda og góða þjónustu. Minni ég ennfremur á pappíra sem ljósmæðrafélagið hefur látið gera fýrir og um heimaþjónustuna. Félagið lét prenta á nýja boli fyrir ljósmæður með merkinu okkar. Þeir em til sölu fúndinum ásamt fleira dóti sem félagið hefur til sölu. Ljósmóðir sú sem hefur boðið sig fram til varaformanns tekur að sér starf fjölmiðla- fulltrúa og netstjóra eins og talað var um á síðasta aðalfundi. Ástþóra Kristinsdóttir, formaður. Tillögur uppstillinganefndar sem samþykktar voru á aðalfundi Ljósmæðrafélags íslands 19.maí 2001. Formaður: Varaform: Ritari: Vararitari: Gjaldkeri: Varagjaldkeri: Meðstjórn: Stjórn: Ástþóra Kristinsdóttir Sími:557-4807 IngibjörgTh. Hreiðarsdóttir Sími:567-0841 Guðrún Eggertsdóttir Sími:698-1586 Sigríður Pálsdóttir Sími:482-2556 Ólafla M. Guðmundsdóttir Sími:564-4254 Rósa Þorsteinsdóttir Sími:554-5567 Guðlaug Björnsdóttir Sími:564-5561 Úr stjórn gengur: Guðlaug Einarsdóttir 'Xfi Ljósmæðrablaðið •^0 nóv 2001

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.