Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1931, Blaðsíða 9

Freyr - 01.01.1931, Blaðsíða 9
Búuaðarmálablað Utgefendur: Jón H Þorbergsson, Sigurður Sigurðsson, Pdlmi Einarsson, dreyr Afgreiðslumaöur Sveinbj. Benediktsson ritari Búnaðarfél. Isl. Pósthólf 657. Árg. blaðsins kostar 5 kr. Gjalddagi 1. júli XXVIII. ár. Reykjavík, Jan.—Febr. 1931 Nr. 1.-2. Ástæður - Horfur. Preyr er síðbúinn að þessu sinni. Hann hefir legið í dvala fyrstu tvo mánuði ársins, en nú skríður hann úr hýðinu og vill verða kraftmeiri og öflugri en nokkrn sinni áð- ur, koma út reglulega og flytja fróðlegar og leiðbeinandi greinar, um alt er íslensk- an búnað varðar. Hann á að verða kær- kominn gestur á hvert sveitaheimili, sem þrá og vona eftir fræðara og leiðbeinanda, Utgefendurnir munu gera sitt ítrasta til að fullnægja þessu markmiði og vér treyst- um stuðningi allra þeirra er unna íslensk- um búnaði og aukinni ræktun í landi voru. Vér væntum að kaupendur vorir geti greitt oss andvirði blaðsins reglulega, enda þótt nú séu iniklir fjárhagsörðugleikar, og að þeir jafnframt útvegi oss nýja kaupendur, tvo til þrjá hver. Vér erum þeim einnig þakklátir fyrir að þeir sendi oss greinar um eitt og annað, sem að búnaði lýtur, t. d. frásagnir um það, sem verið er að framkvæma í sveitunum o. fl. Ennfremur geta þeir sent oss fyrirspurnir um alt er að búnaði lýtur. Vér munum reyna að fá úr því leyst. Með nánu samstarfi milli útgefenda Freys og kaupenda. er hægt að gera blaðið svo úr garði, að það verði bæði leiðbeinandi og fræðaudi, ómissandi á hverju sveita- heimili. Margir munu líta svo á að þeir geti lítið stutt að þessu, en margt smátt gerir eitt stórt. Skilvís greiðsla á blaðinu kemur því til leiðar, að blaðið þarf aldrei að stríða við fjárhagsörðugleika. Pjölgun kaupenda eykur tekjur þess, svo hægt er að stækka blaðið og kosta meiru til út- gáfunnar. Með því að margir leggi skerf til greina í blaðið, verður það skemtilegra og fróðlegra. I sambandi við þessi orð um útgáfu blaðs vors, er rétt að athuga lítillega um að- stæður og horfur búnaðar vors. Ástæður. Ef vér viljum gera oss fyllilega ljóst hvernig búnaðarástæður vorar eru nú, í samanburði við fyr og síðar, kemur margt til greina. ítarleg athugun á þessu væri mjög fróðleg. Nú viljum vér aðeins benda á nokkur atriði. Ræktun. Henni miðar áfram. Síðan jarð- ræktarlögin komu til sögunnar 1923 hafa jarðabætur og ræktun aukist frá ári til árs, meira en dæmi eru til. Þessu til sönn- unar má nefna, að árið 1922 voru unnin 102,000 dagsv., en 1929 — — 740,000 — Þessar miklu framkvæmdir sýna ljóslega skilning bænda á þýðing ræktunarinnar. Nú s. 1. ár hafa verið lagðar 5—6 milj. króna í jarðabætur. Mönnum er orðið það

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.