Freyr - 01.01.1931, Blaðsíða 28
20
F R E Y R
þegar unnið er í óþarfa hrossum sem
hveffa úr sögunni eftir nokkur ár. Það
eru framtíðarhrossin sem á og þarf að bæta
en ekki hrossin sem eiga að hverfa úr
högunum eftir nokkur ár. Þess vegna á
hrossunum að fækka sem fyrst. Athugið
þið þetta bændur góðir þegar vorið kem-
ur og þið farið að aðgæta hvaða hryssur
þið eigið að láta hafnast. Það eru þá bestu
hryssurnar, sem þið eigið að leiða til bestu
folanna, til þess að fá góðan framtíðar-
stofn til eigin notkunar, en hinar eiga ekki
að eiga folald í framtíðinni, og þeirra kyn
á að hverfa, og hrossunum þar með að
fækka. p_ 2.
Úr Húnavatnssýslu:
Síðastliðið sumar vann búfræðingur
Steinbjörn Jónsson frá Háafelli að jarð-
vinslustörfum með dráttarvél i þremur
hreppum í Húnavatnssýslu: Ytri-Torfu-
staða-, Kirkjuhvamms- og Þorkelshólshrepp.
Alls vann hann með vélinni 140 vallar-
dagsláttur. Mest var unnið á einum stað
hjá Axel Guðmuudssyni bónda að Valdar-
ási i Víðidal, 11,3 dagssláttur.
Kostnaður við vinsluna reyndist þessi:
Herfun á óplægðu landi með Wurr spaða-
herfi og fjaðraherfi
40 dagsl., tneðalverð 40—45 kr. pr. dagsl.
65 — öll vinsla — 60—75-------------—
35-----— yfir 75-----------—
Vélin sem hann notaði var International
dráttarvél og var meðaleyðsla yfir sumarið
af bensíni 6 lítrar pr. kl. stund.
Steinbjörn álitur Wurrherfið sérstaklega
fljótvirkt herfi og telur að það vinni vall-
lendisjörð óplægða til 6 þumlunga dýptar.
Hvað er buskapur?
100,00 króna verðlaunum er þeim tieitið,
er bezt og skyrast svarar þessari spurningu.
Þeir sem óska að taka þátt i samkeppninni
sendi svör sín — með nafnseðli í lokuðu um-
slagi — til dómnefndar, fyrir lok júlímánað-
ar næstkomandi.
Svörin verða birt í Frey, þau er hlíða þyk-
ir, en aðeins eitt svar fær verðlaun. Þátttak-
endur í samkeppninni mega eigi vera kenn-
arar bændaskólanna, né starfssmenn Búnaðar-
félagsins.
Dómnefnd skipa Páll Stefánsson frá Þverá,
Reykjavík, og Sig. Sigurðsson búnaðarmála-
stjóri.
Góðir gripir.
Árið 1929 — 30 voru 5142 kýr í eftir-
litsfélögunum í Rogalandsfylki í Noregi.
Meðalnythæðin var 2682 kg. með 3, 95
°/0 fitu. Nythæsta kýrin mjólkaði 6075 kg.
með 3, 53 °/0 fitu. 6 kýr mjólkuðu milli
5000 og 6000 kg. eða ein 5511, önnur
5335, þriðja 5161, fjórða 5161 fimta 5131
og sjötta 5018 kg. mjólkur. 112 mjólkuðu
milli 4000 og 5000 kg.
Reikningarnir eru miðaðir við síðasta
oktober, eins og hér var áður en reikn-
ingsskilin voru færð á áramótin.
Enn eru ekki komnar skýrslur nema
frá fáum félögum eða um þriðjung þeirra
til mín fyrir 1930 en þó eru komnar skýrsl-
ur um tvær kýr sem mjólkuðu yfir 5000
kg. önnur er Búbót á Litlahamri í öngul-
staðahreppi í Eyjafirði. Hún mjólkaði 5488
kg. og hefur undanfarin ár mjólkað svip-
að. Hún hefur magra mjolk eða ekki nema
3, 07 °/0 fitu. Eigandi Búbótar hefur verið