Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1931, Blaðsíða 25

Freyr - 01.01.1931, Blaðsíða 25
F R E Y R 17 gert mál, og ólíkt þýðingarmeira en telja framteljendur, en meðal þeirra eru marg- ir, sem eiga eina kind eða einn hest, og litla þýðingu hefir að fá inn í töluna. Fénaður er talinn á vorhreppaskilum eins og hann er framgenginn að vorinu, og að öðrum tíma árs hefir aldrei verið talið hér á landi. Það er ekkert við því að segja, þó talið sé að vorinu, en það er nauðsyn að það sé líka talið að haustinu. Þá þarf að flokka fénaðinn eins og að vor- inu, en auk þess að telja sláturfénað, þ. e. fénað, sem slátrað er. Með því fæst fyrst glögt yfirlit yfir vetrar og sumar vanhöld- in, sem nú er ekkert til, með því fæst fyrst glögt yfirlit yfii' hversu margt fén- aðar er sett á að haustinu, og með því að fá tölu sláturfjárins, fæst ofurlítil bend- ing um hvernig afkoman mun verða um næstu áramót. Ef það væri samhliða tekinn heyforð- inn, sem heyjast hefði um sumarið, þá fæst líka yfirlit yfir það, hvernig menn í hinum ýmsu sveitum og í landinu sem heild væru undii' veturinn búnir, en það yfirlit hefir aldrei verið hægt að afla sér hingað tl. En ekki væri gagn að taka þessar skýrslur að haustinu, ef ekki væri úr þeim unnið fyrri en eftir 2—3 ár eins og nú er. Úr þeim yrði að vinna strax, svo að þær geti verið aðgengilegar fyrir alla í nóvember. Þetta á líka að vera vel hægt, ef hreppstjórar láta ekki slá í skýrslurnar hjá sér áður en þeir senda þær, og ef tek- inn er af þeim krókurinn til sýslumanns, sem ekki flýtir för þeirra. Ég vona, að menn sjái þörfina á þessu, og sé svo, er ekki að efa, að menn vilja breyta um skýrslunsöfnunina. Máli þessu beini eg einkum til þingmanna og hag- stofustjóra, sem greiðast eiga með að breyta skýrslusöfuninni, svo upplýsingar fáist um það, sem eg hér hefi bent á, að upplýsingar þurfa að fást um. Þá vil eg loks, áður en eg legg pennan frá mér, beina nokkrum orðum til bænd- anna og þeirra er telja fram. Þeir eru altaf grunaðir um að segja miður rétt til, er þeir telja fram til búnaðarskýrslna. Einhver gamall siður, frá því er framtal- ið var lagt til grundvallar fyrir mörgum og flestum gjöldum er hér enn á seiði, en nú þegar engin gjöld eru lögð á eftir framtalinu er þetta meir en ástæðulaust, því það er beinlínis heimskulegt. Eins leikur mér grunur á, að emi séu geldu ærnar óeðlilega margar. Ætli að það sé ekki enn eins og var meðan ær voru lagðar í tíund, að margur telji þær geldar, sem ekki eru bornar um miðjan fardaga. Grun hefi eg um að svo sé víða og vissu fyrir að svo er sumstaðar. Góða vorið 1928 voru geldu ærnar: Á Suðvesturlandi .. 10,6% Á Vestfjörðum .... 6,5% Á Norðurlandi . . . . 9,9% Á Austurlandi . . . . 11,6% Á Suðurlandi . . . . 10,7% Á öllu landinu .. . . 10,1% Beri bændur nú saman við hvemig það var hjá þeim, og aðgætið hvert þið hver einn áttuð svona margar ær geldar. Og þykir ykkur ekki talan vera grunsamlega há. Gleðilegt tákn tímanna er að hrossun- um er loksins að byrja að fækka. Eg var farinn að halda, að þeim ætlaði altaf að fjölga, og skildi illa hvað olli. En nú sé eg, að bændur eru að byrja að átta sig. Og eg vona að augun opnist betur. Þeir sjái að arður að stóðeigninni er lítill, og láti því ekki arðlaust stóð eyðileggja hagana f.vrir öðnim arðsamari skepnum. Að öðru leyti skal ég ekki um skýrsl-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.