Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Side 3
I>V Fréttir
LAUGARDAGUR 10.JANÚAR2004 3
Ókeypis skólabækur!
Spurning dagsins
Ritstuldur eða heiðarleg vinnubrögð?
Jæja, þá er bókaþjóðin mikla
komin upp úr jólabókaflóðinu og
farin að hlaupa um í fjörunni til að
losna við spikið sem hrannaðist upp
inn á milli bókastaflanna.
Ungmennin sem þurfa að kaupa
rándýrar bækur til þess að geta fylgst
með í framhaldsskólunum fagna því
ef einhverjar góðbókmenntir eru
enn plastaðar og hægt að skila þeim
því ekki eru skruddur þeirra ókeypis,
síður en svo.
Ótrúleg lenska að skipta um
bækur
Það er alveg ótrúlegt hvað það er
rnikil lenska að þurfa sífellt að vera
að skipta um bækur sem fjalla um
nákvæmlega sama máfið. Það skyldi
þó ekki vera að einhver sé að græða
á framhaldsskólanémum? Auðvitað
verður að græða á þeim eins og öll-
um öðrum. Hitt er svo annað mál að
þessi gífurlegi kostnaður er sjaldan
tekinn með í umræðuna um brott-
fallið. Það segir sig sjálft að ef maður
dregur það í nokkrar vikur að kaupa
bók sem lesin er í ákveðnum áfanga
þá dregst maður aftur úr og þar með
eru meiri líkur á að maður gefist upp
eða falli. Hvernig væri nú að breyta
algerlega um stefnu í þessum bóka-
málum, hér hjá bókaþjóðinni miklu.
Skólarnir ættu bara að koma sér upp
öllum bókakosti sem nauðsynlegur
er fyrir þá áfanga sem eru í boði og
lána krökkunum bækurnar gegn
tryggingu. Ó ó ó hver á að borga? Nú
ef það er svo að þessi fátæki ríkis-
sjóður, sem hefur efni á því að
hækka eftirlaun leiðtoga langt um-
fram skynsemi, er orðinn tóm tunna
þá væri hægt að fara bedileiðina til
þeirra sem fengið hafa sameiginlegu
sjóðina að gjöf.
Koma varla upp orði nema
með kostun
Útvarps- og sjónvarpsstöðvar
geta varla komið upp orði nema
með kostun og því gætu skólarnir
ekki gert slíkt hið sama? Nei, það er
ósmekklegt vegna þess að hér er
Landið flóirídópi
Kristjana SigurÖaidóttir skrifar.
Heita má dágóður árangur að Toll-
gæslunni hafi tekist að haldleggja 33
kíló af hassi sem dflerarnir hugðust
flytja inn í landið. Aukinheldur
slangur af öðrum eiturlyfjum, en
áæUað er að götuverð alls þess dóps
sem tollverðir tóku nemi 85 milljón-
Lesendur
um króna. Þá náði Lögreglan í
Reykjavík einnig ágætu taki á hlut-
unum í fyrra, svo sem með því að
leggja meiri áherslu en áður á götu-
málin svonefndu.
En hversvegna er árangurinn
ekki ennþá betri? ísland er eyja ægi
girt, sem ætti að gefa tollgæslu-
mönnum frábært tækifæri til að
fylgjast með öllum fíkniefnainn-
flutningi. Smæð samfélagsins ætti
líka að gefa íslensku lögreglumönn-
um betra tækifæri en starfsbræð-
urnir þeirra í nokkru landi hafa til
þess að þekkja sauðina frá höfrun-
um. Hinsvegar er íslenska lögreglan
svo hrikalega fjársvelt að brýn við-
fagnsefni, svo sem að taka á fíkni-
efnavandanum, fá ekki það svigrúm
sem þyrfti.
Fyrir augum okkar blasa afleið-
ingar þess að ekki er betur tekið á
Elísabet Brekkan
lítur í kringum sig eftir
jólahasarinn.
Kjallari
um nám að ræða, nám sem er til
þess hugsað að gera einstaklingana
sjálfstæða, gagnrýna og hæfa til
þess að skoða, skilgreina og stjórna
þessu samfélagi síðar meir. Sé þetta
sjónarmið sem liggur að baki skipu-
lagi skólanna þá er bara að skera
niður svolítinn skara af skriffinn-
um. Er ekkert í tísku lengur að tala
um Parkinsons-lögmálið? Hvernig
væri að rifja svolítið upp kenningar
Parkinsons um skrifræðið? Það er
eins og æxli - ef ekki er skorið getur
það bara stækkað.
Ein pirrandi setning er gegnum-
gangandi og hefur verið lengi. Hún
er:
Þetta er bara svona. Þetta er bara
svona og þetta verður bara svona.
Með því að tuða svona eitthvað
út í loftið, erum við þá ekki bara að
samþykkja alla hluti eins og það sé
einhver guðlegur máttur sem ákveð-
ur ranglætið í samfélaginu?
Ekkert nöidur!
En við skulum ekki tapa okkur í
neikvætt nöldur á þessu ágæta nýja
ári. Það er verið að skoða aðferðir
manna við ævisögusmíði og það er
verið að skoða aðferðir sénía við
sakamálamyndagerð og það er verið
að skoða aðferðir útsmoginna við að
ræna sér bönkum þannig að það er
margt sem bendir til þess að hinir
réttíátu komist framar í biðröð
himnaríkis á þessu ári. Þá eru jarð-
neskar leifar Keikós komnar í góða
gröf hjá frændum vorum Norð-
mönnum og það er vonandi að ein-
hverjar ruglaðar amerískar kerlingar
haldi áfram að sturta úr buddum
sínum til þess að hægt verði að reyta
arfann í kringum hann. Saddam var
dreginn upp úr holunni og lúsa-
fíkniefnamálunum. Landið flóir í
dópi og börn niður f fermingaraldur
neyta þess. Hólmgöngur handrukk-
ara eru daglegt brauð, meðferðar-
stofnanir eru fullar út úr dyrum og
svo mætti áfram telja.
Allir ættu að sjá að best verður á
þessum vanda tekið með því að
auka fjárframlög til lögreglunnar -
og dómsmálaráðherra, Björn
Bjarnason, verður að láta málið til
sín taka. Hann er kappsamur maður
- og ætti að vera jafn fljótur að taka á
þessu máli og mörgum öðrum sem á
hans borð koma.
Metnaðarfullar
verklagsreglur
Ólafui Helgason, skrifar.
Ætíi menn að móta stefnu í ein-
staka málum þykir mikið um vert að
línurnar séu skýrar. En er ekki full-
rnikið af því góða að allt gumsið
gangi út á að til séu „verklagsreglur"
einsog það er kallað. Þetta tískuorð
er svo ofnotað að hið hálfa væri gjör-
samlega kappnóg. Jafnframt þykir
ófínt að tala um háleit markmið,
djarfar tillögur og svo framvegis. Nú
er alltaf sagt að hitt og þetta sé
„metnaöarfullt" einsog komist er að
orði. Jafnvel þótt notkun þess orðs
gangi enganveginn upp nema í
ákveðnu samhengi. Möguleikar eru
kallaðir „úrræði" eða „lausnir" - og
svona mætti áfram telja.
íslenskt mál býður uppá fleiri
möguleika en þetta leiðinlega stagl.
Málið nær yfir allt sem hugsað er á
jörðu, segir Einar Ben, og vissi þó
sjálfsagt ekki hvflíkar óravíddir
mannshugurinn spannar á góðum
degi. Hér er því þörf á að fólk láti
hugarflugið taka völdin og
orðaforðann ráða, en hann aukum
við best og helst með því að lesa
góðar bækur skrifaðar af andríkum
höfundum.
kembdur fyrir framan heiminn, sem
gleður okkur öll, ekki síst með það í
huga að það getur leitt til þess að
heimurinn verði þess aðnjótandi að
Georg yngri haldi áfram að leiða
Láru kláru úr einni heimsálfunni í
aðra til þess að hjálpa áfvegaleiddu
fólki að draga moldvörpumorðingja
upp úr holum sínum.
Færri forsetaveislur, fleiri
skólabækur!
Hvað sem öðru líður þá finnst
mér aðkallandi að gera eitthvað í
„bókamálum" framhaldsskóla-
nema. Skiptibókamarkaður er góð
uppfinning en þar er einnig
græðgin ein sem ræður ríkjum. Að
taka 20 einingar á framhaldsskóla-
stigi á önn kostar aldrei minna en
20-25 þús. krónur í bókakosti. Þá er
ekki talið með skólagjald og rit-
fangakostnaður. Mér finnst löngu
kominn tími til þess að endurskoða
út á hvað þessir framhaldsskólar
ganga. Krökkum er hrósað fyrir að
vinna með skóla, og þeir eru líka
skammaðir fyrir að eyða tíma frá
skólanum f vinnu. Ég var í Svíþjóð
um jólin og var að ræða við for-
eldra, vini mína sem eiga börn á
ýmsum skólastigum. Margt hefur
breyst í Svíþjóð en þó ekki eins
hratt og hér, það er að segja í átt til
egó-væðingar. Eitt sem ágæt kona
sagði mér sló mig svolítið, en það
var dæmi um þá hnignun sem á sér
stað í velferðarrfkinu: Jú, hún sagði
að sums staðar væri meira að segja
farið að láta framhaldsskólanema
borga f mötuneytinu. Ég nennti
ekki að segja henni frá því að við
erum 107 árum á eftir hinum Norð-
urlandaþjóðunum hvað þetta varð-
ar.
Það er auðvitað miklu ódýrara,
sé horft til framtíðar, að hafa allt
ókeypis sem hefur með skóla að
gera. Það er bara hægt að draga að-
eins úr dýrunt forsetaveislum og
öðru snobbi sem skilar sér ekki á
nokkurn hátt inn á borð þegnanna,
allra síst skólakrakkanna.
DV tekur við lesendabréfum og
ábendingum á tölvupóstfanginu
lesendur@dv.is. DV áskilur sér rétt til að
stytta allt það efni sem berst til blaðsins
og birta það f stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds.
Svart band oq gylltur kjölur
„IMenntaskólanum á Akureyri fékk ég bágt fyrir
hjá Tryggva Gíslasyni þegar ég skilaði ritgerð þar
sem ég notaði annarra orðalag og vitnaði ekki til
heimilda á fullnægjandi hátt. Þetta var ekki stór-
vægilegt en gleymist ekki. Dæmi eru um að nem-
endur hafi verið reknir úr skóla fyrir að gera ann-
arra manna texta að sínum. Hannes Hólmsteinn
segirslík vinnubrögð hins vegarí lagi og að fleiri
höfundar stundi þau. Þærskýringar kaupi ég ekki
og skiptir þá engu hver á í hlut. Fyrir vikið ætla ég
nú bara að halda mig við að lesa gamla manninn
orgínal; í bókunum í svörtu bandi með gylltum
kili."
Atli Rúnar Halldórsson blaðamaður
„Hannes skák-
ar í skjóli póst-
móderniskrar
óreiðu, það er
að láta öllu
ægja saman. Á
einni blaðsíð-
unni skrifar
hann sem
fræðimaður,
prófessor við
Háskóla Islands, á þeirri næstu sem vin-
sældahöfundur - og líkir sér siðan jafn-
vel við Halldór Laxness sjálfan."
Árni Bergmann rithöfundur
„EfHannes erí
bókinni að
miklu leyti að
endursegja
frásagnir og
rannsóknir
annarra, þá er
þessi bók afar
ófrumleg og ekki áhugaverð. Því er
beinlínis ekkert sem hvetur mig tii að
lesa hana."
Vigfús Geirdal sagnfræðingur
„Ritstuldur, al-
veg klárt. Mál-
ið snýst ekki
um í hve mikl-
um mæli aðrir
ævisagnaritar-
ar vísa til
heimilda og
enn síður hvort
bókin er skemmtileg eða ekki. Grund-
vallaratriði er að þegar notað er orða-
lag annarra höfunda ber að vísa til
heimilda. Þetta á prófessor að vita."
dr. Ólína Þorvarðardóttir, bók-
menntafræðingur
„Hvort tveggja.
Bókin er að
mörgu leýti
skemmtileg, en
að mörgu leyti
þó uppsóp úr
ýmsum áttum. En Hannes ergjörsam-
lega óbugandi - og verður ekki snúinn
niður af húmorslitlum fræðingum í Há-
skólanum."
Bragi Kristjónsson fornbókasali
$f
Sótt er að Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni vegna ævisögu Halldórs Laxness -
en próferssorinn verst af kappi.
Nýtt á fslandi!
Megrunarmintur
Megrun hefur aldrei verið svalari.
Prófaðu megrunarmintur sem minnka matarlyst
og auka brennslu. Þú færð Slim Mints í næsta apóteki.