Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 Fréttir DV Ástrali fékk fimm mánuði Ástralskur maður var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness til að sæta fimm mánaða fangelsi fyrir að brjóta lög um útlendinga. Maðurinn var stöðvaður á Keflavíkurvelli í byrjun nóvember þegar hann kom hingað til lands ásamt tveimur kínverskum stúlk- um. Öll þrjú reyndust með fölsuð vegabréf og var ferð þeirra heitið vestur um haf til Bandaríkjanna. Maður- inn hefur setið í gæsluvarð- haldi frá 7. nóvember sl. og dregst sá tími frá refsing- unni. Útlendingar ífangelsi Tveir karlmenn um þrí- tugt voru í gær dæmdir í fjögurra mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir fjársvik. Mennirnir komu til landsins frá París 19. desember. Annar mannanna, sem sagður er frá Kongó, var stöðvaður við eftirlit í Leifsstöð og kom í ljós að hann var með falsað vegabréf. Félagi mannsins var handtekinn á gistiheimili £ Reykjavík degi síðar. Hann var með belgískt vegabréf upp á vasann en það reyndist við skoðun vera falsað. Hann segist vera Belgi af marokkóskum uppruna. Með íslenskar kenni- tölur í bönkum Mennimir tveir viður- kenndu að hafa framvísað fölsuðum vegabréfum; annar við komuna til lands- ins og hinn við handtöku. Þá kom upp úr dúrnum að mennirnir voru ekki í sinni fyrstu ferð hingað til lands. Þeir komu hingað £ nóvember og hvor um sig náði sér f fslenska kenni- tölu hjá Hagstofunni. Þeir notuðu sfðan íslensku kennitölurnar til að stofna þrjá bankareikninga í þremur bönkum hvor. Viðurkenndu brotin Þeir viðurkenndu að hafa framvísað fölsuðum skilríkjum á Hagstofunni og f íslenskum bönkum. Til þess að fá íslenska kenni- tölu þurfa útlendingar að hafa uppáskrift einhvers sem búsettur hefur verið hérlendis í einhvern tíma. Lögreglan hafði rökstuddan grun um að mennirnir hefðu haft í hyggju að stunda fjársvikastarfsemi hérlendis. viÖ.bankam Sparisjóður Reykjavíkur í Hátúni hafði verið vaktaður af Öryggismiðstöðinni vikurnar áður en rán var framið í gær. Tveir dökkklæddir menn brutu rúðu í gjaldkerastúku og ógnuðu starfs- fólki með vopnum. Þeir flýðu í átt að miðbænum, annar hjólandi, hinn á hlaupum. Hrifsuðu peninga Ræningjarnir i Spron brutu hlifd- argler gjaldkera og f hrifsuðu af honum ingabunt / ■>* 'VUMWIIIfc.l Hélt ræningjana vera afi hlaupa í mat lil mömmu „Ég sá annan strákgemlinginn þeysast áfram á hjóli og hinn hlaupa á eftir. Ég áttaði mig ekki á því að þetta væri bankarán, það leit bara út fyrir að þeir væru að hlaupa í mat til mömmu,“ segir Andri Guðmundsson, starfsmaður á Hjólbarða- verkstæði Sigurjóns, við hliðina á útibúi Spron í Hátúni sem var rænt klukkan 11.19 í gær. í tilkynningu lögreglunnar segir frá því að tveir dökkklæddir menn ruddust inn í SPRON við Hátún. Þeir komu á reiðhjólum að bankan- um og höfðu nælonsokk strengdan yfir höfuðið. Þeir voru með barefli og hótuðu starfsfólki þar til þeir fengu afhenta fjármuni. Þá hlupu þeir á brott, annar þeirra fór á reiðhjóli sínu en hinn hljóp á eftir. Starfsfólk og nærstaddir fylgdust með þeim á flótta yfir bílastæði þar til þeir fóru fyrir hornið á kirkju Fíladelfíusafnaðarins og hurfu sjónum. Annar ræningjanna skildi eftir reiðhjól sitt. Ræningjarnir létu öllum illum látum inni í bankanum og brutu rúðu við gjaldkerastúku með álkylfu. Þrumu lostnir gjaldkerarnir afhentu peningabúnt þegar annar ræninginn teygði sig yfir brotna rúðu sem ætluð var til að skýla gjald- kerum. Þeir ógnuðu starfsfólki bankans til þess að ná fram vilja sínum. Samkvæmt heimildum DV vaktaði Öryggis- miðstöðin útibúið sérstaklega frá því rétt fyrir jólin, eftir að tveir grunsamlegir ungir menn sáust fyrir utan bankann. Þeir settu á sig lambús- hettur en hurfu á brott, án þess að fara inn í bankann. Lögreglan telur líklegt að ræningjarnir séu á milli 20 og 30 ára gamlir og byggir rannsókn sína á þeim vísbendingum sem lágu fyrir á vettvangi. Lögreglan leitaði mannanna f miðbænum í gær en fann þá ekki. Fólk er beðið að hafa samband ef það býr yfír upplýsingum sem tengjast ræningjunum. jontrausti@dv.is Svarthöfði hefur fengið sönnun þess að það eru fleiri en íslendingar með ættfræði á heilanum. Þar sem hann var á Netinu að leita sér að nýj- um uppskriftum að ostapoppi, tók hann eftir „frétt" sem þar var á sveimi um náin fjölskyldutengsl þeirra harðjaxlanna Arnolds Schwarzenegger og Clints Eastwood. Svarthöfði rakst meira að segja á ættartré, þessu til stuðnings, og varð var við að tréð þætti miklum tfðindum sæta, ekki síst í ljósi þess að fleira væri sameiginlegt með köppunum en „skyldleikinn" einn. Þeir eru báðir kvikmyndastjörnur sem leika ekki alveg ólíkar persónur og báðir hafa líka fengist við stjórn- mál, þótt Schwarzenegger hafi náð heldur lengra en Clint, orðinn ríkis- stjóri í Kaliforníu, en Clint var bara bæjarstjóri í smábænum Carmel um skeið. Ættartréð á Netinu sýnir þó fyrst og fremst, að mati Svarthöfða sem er alveg ófróður um ættir sínar, hvað áhugamenn um ættfræði eru tilbúnir að teygja sig langt til að finna tengsl milli fólks. Þeir félagar „tengjast" neinilega gegnum hjónin William og Ursulu Clinton (forfor- eldra Bills?) sem fóru yfir á veiði- lendurnar miklu um og upp úr miðri sextándu öld eða fyrir rúmum 450 árum. Og reyndar eru tengslin svo veik að varla er orð á þeim gerandi; Clint er vissulega kominn af þeim hjónum en „tengsl" Schwarzeneggers byggj- ast á því að ein Kennedy-systirin giftist manni sem líka var aflcomandi hjónanna. Önnur Kennedy-systir átti dótturina Mariu Shriver og það er hún sem nú hefur gengið að eiga austurrísku píslina og þannig komið á hinum mjög svo umræddu „tengslum" milli Clints og Arnolds. Ef þetta er skyldleiki, eða þó ekki væri nema mægðir, þá skal Svart- höfðihunjdur heita. Hann þykist viss um að Kári klári yrði ekki í vandræð- um með að finna meiri skyldleika kappanna tveggja hvors við annan. Eða skyldleika Svarthöfða við þá báða. Bara ef Kári ætti gagnagrunn. Clint, Arnold og Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.