Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 Fréttir DV Skemmdar- verká Patreksfirði Minniháttar skemmdar- verk hafa verið gerð á eig- um fyrrum héraðslögreglu- mannsins Sigurbjörns Sæv- ars Grétarssonar á Patreks- firði, sem hefur játað á sig kynferðisbrot gegn börn- um. Að því er lögreglan í bænum greinir frá hefur hann orðið fyrir aðkasti, en hann hefur dvalist í bæn- um um nokkurt skeið. Lög- reglan á Patreksfirði rann- sakar enn mál hans, en litl- ar framfarir hafa orðið í rannsókninni, að sögn Þór- ólfs Halldórssonar sýslu- manns á staðnum. „Það hefur ekkert breyst í mál- inu. Nokkur atvik hafa orð- ið til þess að seinka rann- sókninni. Færð og veður hafa verið í verra lagi, ef menn vilja komast á milli staða þá truflar það málið,“ segir Þórólfur, en gefur ekki upp hvort rannsóknin hafi teygt sig út úr byggðinni á Patreksfirði. Hannes afhjúpaður Halldór Ásgrímsson, ut- anríkisráðherra, afhjúpaði sl. laugardag minnisvarða um Hannes Hafstein á ísa- firði. Varðinn stendur við Mánagötu 1 á ísafirði, hús- ið þar sem Hannes bjó þau átta ár sem hann var sýslu- maður ísfirðinga. Afhjúpun þessi er hluti af hátíðahöld- um í tilefni 100 ára heima- stjórnarafmælis þann 1. febrúar, en Hannes var einmitt fyrsti ráðherra ís- lands. í ávarpi þakkaði Halldór Ásgrímsson ísfirðingum fyrir framtakið og fór með erindi úr einu ljóða skálds- ins. Eftir afhjúpun var at- höfn í Safnahúsinu. Lúðra- sveit Isafjarðar lék, Jónas Tómasson spilaði á þver- flautu og Karlakórinn Ernir söng. Kvarta undan launakostnaði Samtök Atvinnulífsins segja að hver starfsmaður á íslandi sé hálfri milljón krónum dýrari en starfs- menn eru að meðaltali í Evrópusambandinu. í frétt á vef SA kemur fram að launahlutfallið í Evrópu- sambandinu nemi um 57 prósentum, á meðan sama tala á íslandi sé 69 prósent. Segja samtökin að ef launa- hlutfallið væri hið sama á íslandi og í ESB myndu fyr- irtæki skila 90 milljörðum króna meiri afgangi en nú. Niðurstaða SA er að ein- ungis aukin framleiðni geti staðið undir raunveruleg- um kjarabótum, en þær verði ekki sóttar í rekstrar- afgang fyrirtækja á næstu árum. Eigendur söluturna segja nóg komið af ránum. Margir þeirra hafa reist varnir til að hindra ræningja og og kona í Vesturbænum hefur stóran varðhund, eftir of- beldisfullt rán. Sjóaður jaxl í Hafnarfirði stökkti ræningja á flótta um helgina. Sjoppur i striö við ræningja „Ég á rísastóran hund, sem hefur varíð mig þegar eitthvað bjátar á.‘ „Guð hjálpi honum ef hann hefði komið á eftir mér, þótt hann hafi verið með hníf," segir Sigurður Lárusson, eigandi Dals-Nestis í Hafnarfirðinum, sem fékk heimsókn frá vopnuðum ræningja á laug- ardagskvöldið. Sigurður bograði yfir peningakassa og var að telja símakort skömmu fyrir lokun þegar maður í lambhúshettu kom inn og hreytti einhverju út úr sér, sem Sigurður skyldi ekki. Þar sem kalt var úti þótti Sigurði ekki óeðlilegt að maðurinn skyldi dúða sig svo vel, en þegar hánn barði hnífseggina í hönd mannsins augum varð hann illur. „Ég get orð- ið ofsalega reiður, og þarna var ég reiður. Ég lít þannig á að það sé rétt að stöðva svona athæfi af því það er grafalvarlegt mál að vera með eggvopn og ógna lífi fólks. Ég snöggreiddist og þeytti skúffunni aftur og hljóp að viðvörunarhnappnum og þrýsti á hann. Hann var ekki með stærra hjarta en svo að ég sá eftir honum hlaupandi í burt þegar heyrðist í við- vörunarkerfinu," segir harin. Erfitt að fá starfsfólk Ræninginn, sem er um tvítugt, komst ekki langt hlaupandi í djúpum snjónum og náði lögreglan honum lafmóðum í næstu götu. í yfirheyrslum ját- aði hann á sig rán í Egyptanum, söluturni í sama bæ. Félagi hans úr ráninu í Egyptanum var handtekinn sama kvöld. Sigurður í Dala-Nesti hefur gripið til mikils við- búnaður í söluturninum, sem skilaði sér á laugar- daginn. Lögreglan lýsir honum sem sjóuðum jaxli sem gefur ræningjunum ekki þumlung eftir. Hann hefur lagt starfsfólkinu lífsreglurnar en tekur marg- ar kvöldvaktir sjálfur af ráðnum hug. Hann hefur komið upp nokkmm boðleiðum til lögreglunnar inni í sjoppunni. En samkvæmt heimildum DV er Sigurður ekki einn um að skera upp herör gegn ræningjum. Marg- ir sjoppueigendur á höfuðborgarsvæðinu hafa nú tekið sig til og em farnir að vígbúast. Enda er orðið erfitt að fá starfsfólk til að sinna afgreiðslustörfum í söluturnum. Foreldrar vilja hreinlega ekki taka áhættuna og leyfa ungmennum sínum að starfa í sjoppu vegna hættunnar á vopnuðum ránum. Barði eiginmanninn Þórhiidur Ásgeirsdóttir, eigandi söluturnsins Vídeóspólunnar við Bræðraborgarstíg, hefur gripið til þess ráðs að hafa stóran hund með sér á vakt. „Ég á risastóran hund, sem hefur varið mig þegar eitt- hvað bjátar á. Nú reyni ég að hafa hann með mér í sjoppunni, enda æðir fólk ekki á móti hvaða hundi sem er,“ segir hún. Vídeóspólan var rænd í desember í fyrra af tveimur piltum, einum tvítugum, en hinum fjórtán ára gömlum. Þórhildur var á vakt ásamt eigin- manni sínum. Henni var ógnað með hnífi og eiginmaðurinn hand- leggsbrotnaði í átökum við annan ræningjann, en tókst að hrekja þá á brott. Síðan þá hafa þau kostað miklu til að reisa varnir í sölutuminum. „Öryggiskerfið er orðið dýrara en allt dótið í sjoppunni. Það er ekki endalaust hægt að segja já og amen. Eg get ekki ætlast til þess að starfs- fólkið sé að ráðast á svona menn, peningar em bara peningar, en við eigendur ráðum hvað við gemm í þessari stöðu. Maður fær áfall þegar mðst er að manni með ofbeldi fyrirvaralaust, það versta em áhrifin á sálarlífið. Mér finnst ég hvergi óhult, ekki einu sinni heima hjá mér. En þetta em aumingjar með hor og það á að taka á þeim. Þeir ákveða sjálfir að gera þetta og hafa enga réttlætingu fyrir gjörðum sínum,“ segir Þórhildur. jontrausti@dv.is Vídeóspólan Kominmeð hund á vaktina og hefur eytt hundruðum þúsunda í varnir gegn ræningjum. Nýr atvinnuvegur eyðilagður í Það hefur stundum verið sagt að helsti gallinn við stjórnarstefnu nú- verandi ríkisstjórnar sé að hún hafi ekki hugsað nóg um okkar minnstu bræður og systur. Það má meðal ann- ars marka af því að þótt góðæri hafi verið ríkjandi síðastliðinn áratug, þá hafa óánægjuraddir hópa eins og aldraðra, sjúklinga og öryrkja aldrei verið hærri. Og nú þykir Svarthöfða að steininn hafi tekið úr. Það er svo augljóst orðið að ríkisstjórnin hugsar ekki nægilega vel um smælingjana í þjóðfélaginu að við það verður ekki lengur unað. Ekki er nóg með að stór hópur fólks í þessu þjóðfélagi sér ekki lengur nein ráð til bjargar sér, heldur en að fremja bankarán eða þá ræna sjopp- ur, heldur er nú svo komið að sumir neyðast til að ljúga upp á sig barsmíð- um og handmkkun til að hafa í sig og á. Sagan af skötuhjúunum í Kópa- vogi sem neyddust til að halda því fram að einhverjir misindismenn hefðu ráðist inn á þau seint að kvöldi, barið og þau og skorið, og síðan pínt stúlkuna til að fara með sér í hrað- banka til að taka þar út peninga Sú saga er sko ekkert grín eins og Spaug- stofan virtist halda á laugardagslwöld- ið var, heldur djúpur áfellisdómur um stefnu ríkisstjómarinnar og ástand þjóðfélagsins. Svarthöfði er satt að segja gráti nær yfir líðan þessa vesalings unga fólks sem í nauðum sínum sest niður á síð- kvöldi og sér ekki annað til bragðs að taka í lífinu en að sjóða saman þessa ránssögu í von um að geta síðan selt fjölmiðlum söguna. Og virkilega andstyggilegt af DV að taka ekki boði þessa fátæka fólks, þó svo að það væri kannski eitthvað mál- um blandið. Hefur ekki stefnan í þjóð- félaginu verið sú að rétt sé að ýta sem best undir ný atvinnutækifæri? En með því að þiggja ekki boð hjúanna um sögu þeirra fyrir skitinn 300 þús- und kall, þá er augljóst að DV hefur skotið niður í fæðingu atvinnuveg sem hefði getað orðið blómlegur hjá þeim verst settu í þjóðfélaginu. Svarthöföi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.