Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004
Sport DV
Keflavíkingar
í úrslitaleikinn
Keflavík tryggði sér sæti í
úrslitum bikarkeppni KKÍ
og Lýsingar þegar liðið
lagði Grindavík að velli,
107-97, í undanúrslitum í
Grindavík á laugardaginn.
Keflavík hafði frumkvæðið í
fyrri hálfleik og leiddi í hálf-
leik, 59-52. Grindvíkingar
komu hins vegar sterkir inn
í þriðja leikhluta og leiddu
að honum loknum, 83-78.
Þá var hins vegar allur
vindur úr þeim, Keflvíking-
ar gengu á lagið og unnu
sannfærandi sigur, 109-97.
Bandaríkjamennirnir Nick
Bradford og Derrick Allen
áttu frábæran leik í liði
Keflavíkur og segja má að
þeir hafi gert gæfumuninn.
Allen skoraði 35 stig og tók
14 fráköst og Bradford skor-
aði 35 stig og tók 11 fráköst.
Gunnar Einarsson átti
einnig góðan leik og skor-
aði 22 stig. Darrell Lewis
var yfirburðamaður hjá
Grindavík með 40 stig og 8
fráköst og Timothy Szatko,
nýr Bandaríkjamaður í liði
Grindavíkur, skoraði 15 stig
í sínum fyrsta leik.
Naumt hjá
Njarðvík
Njarðvíkingar tryggðu
sér einnig þátttökurétt í úr-
slitaleik bikarkeppni KKÍ og
Lýsingar á laugardaginn
með því að bera sigurorð af
Snæfell, 74-69, í Stykkis-
hólmi. Snæfell hafði yfir-
höndina fyrstu þrjá leik-
hlutana og leiddu, 54-46,
fyrir fjórða og síðasta leik-
hlutann. Þá gyrtu Njarðvík-
ingar sig í brók og kláruðu
leikinn með góðum
lokakafla. Dondrell Whit-
more var stigahæstur hjá
Snæfelli með 16 stig, Lýður
Vignisson skoraði 13 stig og
Sigurður Þorvaldsson skor-
aði 12 stig. Páll Kristinsson
átti skínandi leik fyrir
Njarðvík, skoraði 18 stig og
tók 12 fráköst, Brandon
Woudstra skoraði 16 stig og
Brenton Birmingham skor-
aði 14 stig.
Hildur
hafði betur
KR-stúlkur eru komnar í
úrslitaleik í bikarkeppni
KKÍ og Lýsingar í kvenna-
flokki eftir sigur á Hauka-
stúlkum, 72-53, í DHL-höIl-
inni á laugardaginn. Sigur
KR var öruggur allan tím-
ann þrátt fyrir að Haukar
hafi leitt eftir fyrsta leik-
hluta, 16-14. KR hafði tíu
stiga forystu í hálfleik og
leiddi með tuttugu stigum
eftir þriðja leikhluta. Leik-
urinn snerist að mestu upp
í einvígi á milli Hildar Sig-
urðardóttur hjá KR og Hel-
enu Sverrisdóttur hjá
Haukum. Hildur skoraði 33
stig, tók 13 fráköst, stal 8
boltum og gaf 7 stoðsend-
ingar en Helena stóð henni
ekki langt að baki með 25
stig, 21 frákast, 6 stoðsend-
ingar og 6 stolna bolta.
Katie Wolf skoraði tólf stig
og tók 11 fráköst fyrir KR.
Hanna Hálfdánardóttir
skoraði 10 stig fyrir Hauka.
Eyjastúlkur áfram í Evrópukeppninni
23ja marka sveifla
á milli leikja
Eyjastúlkur eru komnar áfram í
Áskorendakeppni Evrópu eftir tvo
leiki gegn búlgarska liðinu Etar
Tarnova í Vestmannaeyjum um
helgina.
IBV vann fyrri leikinn á laugar-
daginn með 22ja marka mun, 38-
16, eftir að staðan hafði verið, 19-8,
í hálfleik.
Anna Yakova var markahæst í
liði ÍBV með tólf mörk, Guðbjörg
Guðmannsdóttir skoraði fimm
mörk og Alla Gokorian og hinir
austurrísku Birgit Engl og Sylvia
Strass skoruðu fjögur mörk hver.
í síðari leiknum í gær var hins
vegar annað uppi á teningnum en
þá beið ÍBV lægri hlut, 18-17.
Anna Yakova var markahæst
með fimm mörk, Birgit Engl skoraði
fjögur mörk og Ester Óskarsdóttir
skoraði þrjú.
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari
ÍBV, sagði í samtali við DV Sport í
gær að hann hefði litið á seinni
leikinn sem hálfgerðan æfingaleik
og leyft ungum stelpum að spreyta
sig.
„Við notuðum þennan leik til að
æfa nýja vörn og leyfa ungum stelp-
um að spreyta sig. Ég hvíldi lykil-
menn enda var engin ástæða til
þess að spila á sterkasta liðinu. Það
er reyndar leiðinlegt að þessi leikur
skuli hafa verið sýndur beint í sjón-
varpinu en ekki fyrri leikurinn en
hann var frábær. Þá spilaði liðið oft
á tíðum stórkostlegan handbolta og
hélt haus allan leikinn. Við unnum
báða hálfleikina, 19-8, og þótt and-
stæðingurinn hafi verið slakur þá
þarf að spila vel til að vinna með
22ggja marka mun. Það er enginn
hægðarleikur," sagði Aðalsteinn.
Eyjastúlkur eiga erfiðan leik
ffamundan gegn Haukum á mið-
vikudaginn og sagði Aðalsteinn að
það hefði verið gott að geta hvílt
lykilmenn í seinni leiknum f gær
fýrir átökin gegn Haukum.
Markahæst í báðum leikjum Stórskyttan Anna Yakova var markahæst I EyjaliÓinu i
báðum leikjunum gegn Etar. Hún skoraöi tóifmörk i fyrri leiknum og fímm í þeim seinni.
Vinstri vængurinn
vaknaður
íslenska handboltalandsliðið gerði góða hluti á fjögurra þjóða
æfingamótinu í Danmörku og Svíþjóð um helgina og endaði að lokum í
öðru sæti. Fyrsta sætið var alls ekki svo fjarri lagi enda tapaðist leikurinn
við Svía með minnsta mun. ísland byrjaði mótið með frábærum 33-28 sigri
á Dönum, tapaði síðan með einu marki, 28-29, fyrir Svíum og vann að
lokum lið Egypta örugglega, 29-27,sem var mun öruggari sigur en tölurnar
gefa til kynna. Það gleður væntanlega íslenska handboltaáhugamenn mest
að vinstri vængur íslenska liðsins virðist vera vaknaður eftir daufa leiki
gegn Sviss en þeir Patrekur Jóhannesson og Jaliesky Garcia léku mjög vel á
mótinu og skoruðu saman 21 mark.
21 mark saman Patrekur Jóhanneson (til vinstri) og Jaliesky Garcia skoruðu 21 mark saman
á æfingamótinu íDanmörku og Svíþjóp, Patrekur 11 og Garcia 10. DV-myndir Pjetur
Sigurinn á Dönum stendur
vissulega upp úr á þessu móti en
íslenska liðið átti þá frábæran dag og
sérstaklega í seinni hálfleik en liðið
vann hann með sex mörkum, 16-10.
ísland var mest komið átta mörkum
yfir og það var vörnin og markvarslan
sem gerði Dönunum lífið leitt.
Leikurinn gegn Svíum hefði vel
getað endað með sigri okkar manna
en íslenska liðið vann sig út úr
slökum fyrri hállfeik með því að
skora 11 af fyrstu 17 mörkum seinni
hálfleiks og voru tveimur mörkum
yfir þegar skammt var til leiksloka.
Svíar höfðu heppnina með sér í
lokin en íslensku strákarnir gera sér
vel grein fýrir því að engin ástæða er
til annars en að Svfagrýlan heyri nú
loksins sögunni til. Lokaleikurinn
gegn Egyptum var í öruggum
höndum þrátt fyrir að munurinn
hafi aðeins endað í tveimur
mörkum.
íslenska liðið sýndi gegn þessum
þremur sterku þjóðum sem allar eru
á leiðinni á Evrópumótið líkt og
íslenska liðið, að liðið er tilbúið í
slaginn. Lið Dana og Svía ætla sér
stóra hluti og þau voru voru á
heimavelli sem gerði verkefnið enn
erfiðara en ella.
Síðasti leikurinn í
undirbúningnum er gegn b-liði Dana
í Bröndby í kvöld og þá fá væntanlega
að spreyta sig þeir leikmenn sem
voru í minni hlutverkum á mótinu.
ooj@dv.is
Mörk íslands á æfingamótinu
ísland - Danmörk 33-28
ísland -Svíþjóð 28-29
Island - Egyptaland 29-27
17
GuðjónValur17
Róbert S.
Róbert G. 2
—7 p
Einar Örn 5
Gylfi 2
4
22
Patrekurll
GarciolO
RúnarS.1
11
ÓlafurS. 11
etpB
13^„
ÓlafurS. 13
Snorri Steinn 6