Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 19.JANÚAR 2004 Fréttir DV Ekkert eitur Formlega var staðfest í gær að ekkert eitur var í vopnunum sem íslensku starfsmenn Landhelgis- gæslunnar og félagar þeirra úr danska hernum fundu í Irak á dögunum. Var þess- um fundi lýst sem heims- viðburði, meðal annars af Halldóri Ásgrímssyni, utan- ríkisráðherra. Ekki kemur fram í tilkynningu frá danska hernum hvað varð til þess að menn töldu efnavopn vera á ferðinni, né hvort nokkur hætta staf- aði yftrhöfuð af hylkjunum sem fundust. Réttað yfir ræningjum Réttarhöldum lauk fyrir helgi yfir tveimur karl- mönnum sem frömdu tvö vopnuð rán árið 2002. Mennirnir voru ákærðir fyrir að hafa ráðist inn í bensínstöð Olís við Skúlagötu í nóvember. Menn- irnir lokuðu afgreiðslu- stúlku inni á lager og veitt- ust að öðrum starfsmanni og skipuðu að peningakassi yrði opnaður. Þeir höfðu rúmar 20 þúsund upp úr krafsinu. Þremur dögum síðar voru mennirnir aftur á ferðinni og ruddust inn í 11 /11 við Skúlagötu. Þar veittust þeir að afgreiðslu- fólki og Iétu opna peninga- kassa. í þetta skipti höfðu mennirnir rúmar 100 þús- und upp úr krafsinu. Auður íslands hjáoffáum? Sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur. „Hefur auður Islands ekki alltafverið á fárra höndum? Kosturinn við núið er að hiut- irnir breytast hratt og mögu- leikar manna til dæmis til að komast í álnir eru meiri en oft- astáður." Hann segir / Hún segir „Ég myndi vilja sjá fleiri til þess að virkja þær auðlindir þjóðar- innar sem ónýttar eru. Sá mikli auðursem eráhöndum ein- stakra manna er ágætur þar sem hann er - en aðrir í tand- inu hafa sín tækifæri til að efn- ast." Ásdís Eva Hannesdóttir, Flugfreyjufélagi (slands. Hanna Lilja Bjarnadóttir er 24 ára og seinþroska. Hún hefur starfað hjá IKEA und- anfarin fjögur ár og aldrei fengið eina kvörtun. Samt var hún rekin. IKEA svíkur seinþroska stúlku „Ég var búin að vinna hjá IKEA í fjögur ár við að vaska upp og aldrei verið kvartað undan mér,“ segir Hanna Lilja Bjarnadóttir sem var sagt upp störfum án nokkurra útskýringa. „Það var verið að breyta öllu og fýrir tveim vikum síðan fékk ég uppsagnar- bréf,“ segir Hanna. „Auðvitað varð ég voða hissa en þau sögðu bara að það væm breytingar og ég þyrfti að hætta.“ Áfall fyrir fjölskylduna Hanna er 24 ára gömul, seinþroska og með fullar örorkubætur. Hún er nýbúin að kaupa sér íbúð skammt frá heimili móður sinnar og stólaði á vinn- una í IKEA til að halda endum saman. ,Ætli maður verði ekki að leita sér að nýrri vinnu til að halda íbúðinni," segir Hanna sem er 24 ára gömul. Elsa Axelsdóttir, móðir Hönnu, segir þetta vera áfall fyrir alla fjölskylduna. „Hún hefur alltaf lagt mikla rækt við vinnuna sína, mætt á réttum tíma og verið tilbúin að vinna meira ef hún hefur verið beð- in um.“ Elsu finnst aðgerðir IKEA mjög harkalegar og bendir á að Hanna hafi ekki verið ráðin eins og hver annar starfsmaður. „Hún fékk vinnuna í gegn- um prógram sem kallast, atvinna með stuðningi. Það miðast við fólk með sérþarfir og ég hélt að tekið væri tillit til þess.“ Verður að sýna fötluðum skilning Árni Már Björnsson, forstöðumaður atvinnu með stuðningi, segir að hann hafi óskað eftir því við IKEA að haft yrði samband við stofnunina ef breyt- ingar yrðu á starfsmannamálum. „I tilfelli Hönnu, sem var fyrsti starfsmaðurinn sem fékk vinnu í gegnum okkur, er ég að heyra þetta fyrst núna,“ seg- ir Árni. „Við höfum beðið IKEA um að vera í sam- starfi við okkur en það hefur greinilega ekki verið virt." Árni segir að fýrirtæki verði að sýna fötluðum einstaklingum skilning. „Það verður að taka sérstakt tillit til þeirra." Framkvæmdastjóri IKEA neitar að tjá sig Hanna Lilja er þegar byrjuð að leita að nýrri vinnu og vonar að hún geti haldið íbúðinni. Jóhann- es R. Jóhannesson, framkvæmdastjóri IKEA, vildi í samtali við DV ekki tjá sig um málefni einstakra starfsmanna. Hann staðhæfði þó að IKEA legði sér- staka álterslu á að veita fötluðum vinnu. Við eftirgrennslan DV kom hins vegar í ljós að af um hundrað starfmönnum IKEA eru aðeins tveir fatlaðir einstaklingar. Annar þeirra er Hanna Lilja sem er nú að vinna út uppsagnarfrestinn. simon@dv.is „Hún hefur alltaf lagt mikla rækt við vinnuna sína, mætt á réttum tíma og verið til- búin að vinna meira efhún hefur verið beðin um." Hanna Lilja „Ég ^ar búin að vinna hjá IKEA i fjögur ór við að vaska upp og aldrei verið kvartað undan mér." Stjórnarliðar vilja að Pétur Blöndal víki úr efnahags- og viðskiptanefnd í Spron málinu. „Myndi ekki mæta í sporum Péturs" Viðhorf eru uppi í liði beggja stjórnarflokkanna um að Pétur H. Blöndal, formaður efnahags- og við- skiptanefndar alþingis, eigi að víkja alfarið sæti í umfjöllun nefndarinn- ar um Spron-málið svonefnda, vegna tengsla sinna við það. Að- finnslur í þessa veru komu fram í nefndinni á dögunum, þá af hálfu fulltrúa Samfylkingar, sem vildu að Pétur viki alfarið meðan málið væri til umfjöllunar. Því neitaði hann en bauðst til að sitja áfram sem óbreyttur nefndarmaður í umfjöllun um málið. Það boð var skilyrt því að tillaga Samfylkingarinnar yrði dreg- inn til baka. Á það féllust nefndar- menn hennar ekki. Tillaga þeirra var felld í at- kvæða- greiðslu og í framhaldinu ákveðið fá forsætis- nefnd þings- ins til að gefa álit um málið og stöðu Pét- urs. Forsætis- nefndin fundar í dag. Kristinn H. Gunnarsson þing- maður Framsóknarflokks mun, skv. heimildum DV, eindregið þeirrar skoðunar að Pétur sé ekki hæfur til að fara með þetta mál í nefndinni. Slíkir séu hagsmunir hans og tengsl. „Mér finnst asna- legt af Pétri að vera gera mál úr þessu. Það er minni- háttarmál hver stýrir fundi og hver og einn verð- ur að gera þetta upp við sjálfan sig,“ sagði Einar Oddur Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokks sem kveðst „eindreginn sparisjóðamað- ur“ einsog hann kemst að orði. Birg- ir Ármannsson sem á sæti í báðum fyrrgreindum nefndum telur að Pét- ur eigi að víkja. Gunnar I. Birgisson er hinsvegar á öðrum máli. „í sporum Péturs myndi ég ekki mæta til fundar í nefndinni þar sem Spron-málið er til umfjöllunar. Hann sjálfur verður síðan að svara spurningum um hvað sé siðferðislega rétt í þessu máli og þú getur nú rétt ímyndað þér hvort ég hafi ekki rætt þetta mál við Pét- ur,“ sagði Gunnar, sem kveðst vilja lögfræðiálit um stöðu Péturs þá með tilliti til tengsla hans við Spron. „Ég vil að þetta sé alveg kristalklárt," segir Gunnar. sigbogi@dv.is Pétur H. Blöndal Gunnar I. Birgisson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.