Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Side 9
DV Fréttir MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 9 Kvikmynda- framleiðandi iur ekki [attinn sleppu við sk< Fjöldi dæma eru um að nýir eigendur útgerðarfyrirtækja lofi heimamönnum áframhaldandi vinnslu og störfum. Sigurjón Þórðarson, þingmaður frjálslyndra, er hissa á því að viðskiptaráðherra treysti orðum útgerðarmanna um starfsemi í heimabyggðum. „Það eru ekki fordæmi íyrir því að menn hafi verið að fella niður slík gjöld,“ segir Eiríkur Björn Björg- vinsson, bæjarstjóri á Egilsstöðum, um beiðni Sigurjóns Sighvats- sonar og Sigurðar Gísla Pálmasonar um að fasteigna- gjöld verði felld niður af eignunum á Eiðum. Félagarn- ir keyptu Eiða af sveitarfélaginu Austur-Héraði í þeim tilgangi að koma þar á fót menningarstarfsemi. í nýlegu bréfl Árna Páls Árnasonar, lögmanns fé- laganna, til bæjarstjórans segir að nokkurra milljóna króna halli hafi verið af rekstri fasteignanna, og með fasteignaskatti nemi hallinn um 5-6 milljónum króna á ári, fyrir utan . Árni kallar hallann fórnar- kostnað vegna staðsetn- ingar verkefnisins. Lítlu skilað Eiríkur bæjarstjóri segir að til greina komi að styrkja einstök verkefni á Eiðum, en engin ákvörðun verði tekin um það fyrr en yfirvöldum er kynnt kostnaðará- ætlun verkefn- anna. Til stendur að sýna þrjú leikverk og eitt ballettverk að Eiðum á næstu misser- um. Þá er fyrirhugað að myndlistarsýning fari fram næsta sumar og að gefin verði út bók í tengslum við hana. Austfirðingar hafa gagnrýnt að hingað til hafi lítið orðið úr starfsemi menningarsetursins, en talið er að ósamkomulag bæjarstjórnarinnar og eig- enda Eiða sé þar um að kenna. Börnin taka við af Alla ríka Böm Aðalsteins Jóns- sonar, Alla ríka, frá Eski- firði, hafa keypt útgerðar- fyrirtækið Eskju af foreldr- um sínum. Kauphöll fs- lands var tilkynnt um eig- endaskiptin á Hólmum ehf., stærsta hluthafanum í Eskju, á dögunum. Eigend- ur fýrirtækisins em nú Elf- ar, Kristinn og Björk Aðal- steinsbörn. Elfar er nú einn umsvifamesti maður Aust- fjarða, hann er forstjóri Eskju og stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Austurlands. Svikin loforð og sviQin jöril í bvggðnm „Eg er hissa að Valgerður skuli vera jafn auðtrúa og raun ber vitni," segir Sig- urjón Þórðarson, þingmaður Frjáls- lyndra flokksins, vegna ummæla Val- gerðar Sverrisdótt- ur, viðskipta- og iðnaðarráðherra, um að hún hefði orð nýrra eigenda .. .. . . „ „ , c. ■ u - x t't7 x Sigurion Þorðarson Undrast fy™ ÞV1 Utgerð- traust ValgerðarSverrisdóttur við- arfelag Akureyrtnga skiptaráðherra á útgerðarmönn- yrði áfram starfrækt unum frá Rifi, sem segjastætia að á Akureyri. Norðan- starfrækja ÚA áfram á Akureyri. mönnurn er órótt vegna þess að ÚA er í höndum utanbæjar- manna, en Guðmundur Kristjánsson, útgerðar- maður frá Rifi, faðir hans og bróðir, keyptu ÚA af | Brimi á dögunum, þvert gegn vilja heimamanna. Sigurjón bendir á fjölda dæma þess að nýir eigend- _____ ur skipa og fyrirtækja lofi Viðskiptaráðherra heimamönnum því að Valgerður Sverrisdóttir starfsemi og umsvif eigi trúir orðum feðganna frá sér áfram stað í heima- byggð. Miðnes í Sandgerði var sameinað Haraldi Böðvarssyni á Akranesi árið 1997 með loforði um að vinnsla í Sandgerði yrði aukin. Það gekk ekki eftir, og reyndin varð sú að 10 þúsund þorskígildistonna kvóti fór frá Sandgerði næstu árin á eftir. Sandgerðingar vildu kaupa hann til baka með sameinuðu átaki þegar salan á Haraldi Böðvarssyni gekk yfir á dögunum en auðnaðist það ekki. Togarinn Már var seldur frá Ólafsvík við sam- einingu Snæfellings við útgerðarfélög í eigu KEA fyrir norðan með því loforði að starfsemi yrði haldið uppi í heimabænum, en það gekk ekki eftir. Seyðfirðingum var lofað áframhaldandi vinnslu í heimabyggð þegar téð ÚA keypti kvóta af sveitarfélaginu, en það gekk ekki eftir. Þegar ÚA náði yfirhöndinni í Jökli á Raufarhöfn var það tekið fram af þeirra hálfu að þeir myndu halda rekstri frystihússins áfram. Úppnámið á Raufarhöfn síðasta sumar varð þegar ÚA, sem hafði keypt Jökul hf., félag heimamanna árið 1999, tilkynnti um uppsagnir allra 50 starfs- Baldvin Þorsteinsson EA Guggan heitirnú Baldvin. „Guggan verður áfram gul og gerð út frá ísafirði, "sögðu Samherjamenn þegarþeir keyptu hrönn. manna frystihússins í þessu 250 manna sveitar- félagi. Samherji gleypti sjávarútvegsfyrirtækið Hrönn á ísafirði, með Guðbjörgu ÍS, flaggskip Vestfjarða innanborðs, árið 1996. Hin frægu orð „Guggan verður áfram gul og gerð út frá ísafirði" kváðu við úr munni Samherjamanna, en Gugg- an lét lítið sjá sig fyrir vestan, heitir nú Baldvin Þorsteinsson EA og er vínrauður. Þá voru togar- arnir Víðir og Margrét seldir frá Samherja á ní- unda áratugnum með því loforði að þeir lönd- uðu áfram í Hafnarfirði, en það brást. Guðmundur Kristjánsson frá Rifi keypti Básafell á ísafirði og var búist við áframhaldandi vinnslu í bænum. Svo fór að fyrirtækið var bút- að í sundur og selt burt. „Reynsla mín er sú að gegnum tíðina hefur ekkert verið að marka fög- ur orð nýrra eigenda. Um það eru fjölmörg dæmi og trú Valgerðar hlýtur því að vera afar mikil," segir Sigurjón þingismaður. Bæjarstjórnin á Isafirði ákvað á fundi sínum fyrir helgi að senda Akureyringum baráttukveðj- ur vegna sölunnar á ÚA til utanbæjarmanna og skora á feðgana frá Rifi að vinna með heima- mönnum að eflingu byggðarlagsins. Magnús Reynir Guðmundsson, bæjarfulltrúi Frjáls- lyndra, fór fram á að baráttukveðjunum yrði breytt í samúðarkveðjur með þessum orðum: „íbúar ísafjarðarbæjar og aðrir Vestfirðingar hafa á undanförnum árum fengið að kenna á af- leiðingum þeirrar óstjórnar, sem ríkt hefur í „Vestfírðingar hafa á undan- förnum árum fengið að kenna á afleiðingum þeirrar óstjórn- ar, sem ríkt hefur í fiskveiði- stjórnun á íslandi undanfarin 20 ár og geta því hæglega sett sig / spor Akureyringa. “ fiskveiðistjórnun á íslandi undanfarin 20 ár og geta því hæglega sett sig í spor Akureyringa." Valgerður Sverrisdóttir segist í samtali við DV í gær ekki hafa neina ástæðu til að vantreysta feðgunum frá Rifi. „Ég veit að þessir menn hafa getið sér ágætt orð og ég trúi því að þeim sé full alvara í því að reka fyrirtækið í svipuðu formi og það er. Þetta er stórglæsilegt fyrirtæki með góðu starfsfólki og það verður ekkert betur rekið ann- ars staðar. Þessir ungu menn líta á þetta sem gott tækifæri. Ég hef þá reynslu og met það þannig að það sé full ástæða til að taka orð þeirra alvarlega. Auðvitað getur maður aldrei fullyrt neitt til allrar framtíðar. Það er hvorki hægt í sambandi við sjávarútveg, né annan rekstur. Þetta er þeirra vilji í dag og ég trúi því.“ jontrausti@dv.is aibert@dv.is Keyrði á eina sjö kyrrstæða bíla en fótur hans festist á bensíngjöfinni. Þjóð gegn þunglyndi Landlæknir hefur opnað nýjan vef um allt sem lýtur að þunglyndi. Hann nefnist Þjóð gegn þunglyndi og hefur að geyma fræðslu fyr- ir sjúka og aðstandendur þeirra, efni fyrir fagfólk og ýmsar upplýsingar um sjúkdóminn og forvarnir. Þar eru til að mynda sjálfs- próf til að hjálpa fólki að átta sig á hvort það er þunglynt og bent á þá fjöl- mörgu aðila sem komið geta til hjálpar. Slóðin erwww,- thunglyndi.landlaeknir.is Ekki glæpur að flogaveikir keyri bíl Slæm aðkoma Sjö kyrrstæðir bilar við Stigahlið skemmdust i árekstrinum. „Fólk með flogaveiki mætir stundum ekki fullum skilningi í samfélaginu," segir Jónína Guð- mundsdóttir, verkefnastjóri hjá samtökum flogaveikra. „Það geta allir fengið flogaköst fyrirvaralaust og nær ómögulegt að sjá á einstak- lingnum hvort hann hafi sjúkdóm- inn." Keyrði á sjö bíla í fyrradag missti ökumaður stjórn á bíl sínum þegar hann fékk flogaveikiskast á Miklubrautinni. Hann festi fótinn á bensíngjöfinni og stoppaði ekki fyrr en hann hafði keyrt á eina sjö kyrrstæða bfla í íbúðahverfi. Mesta mildi var að öku- maðurinn slapp lifandi. Jónína segir að oft á tíðum sé gert of mikið úr svona fréttum. „Flogaveiki er bara sjúkdómur og ekki er hægt að álíta það glæp að flogaveikur einstakling- ur keyri bfl.“ Strangar reglur Jónína segir að mjög ákveðnar reglur gildi varðandi ökuréttindi fólks með flogaveiki. „Reglurnar miðast við að fólk hafi verið án kasts í 12 mánuði," segir Jónína. „Það er strangt farið eftir þessu og læknar sjá um að skrifa út vottorð sem stað- festa ökuréttindin." Löggjöfm á ís- landi er nokkuð ströng miðað við til dæmis f Bandaríkjunum. „Þar er rniðað við að einstaklingur hafi ver- ið laus við flogaköst í þrjá mánuði. Þannig að aðhaldið er mikið hér á landi." simon@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.