Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 Fókus DV Television Marquee Moon ★ ★★★★ Rhino/Skífan Hér er á ferðinni endur- útgáfa á einu af höfuðverk- um New York rokksins. Marquee Moon kom upp- haflega út árið 1977, en var gefln út nýlega í mjög vandaðri útgáfu með auka- lögum. Margir tónlistarfjöl- Plötudómar miðlar velja hana sem eina af bestu endurútgáfum síð- asta árs, þ.á.m. NME sem setur hana í fyrsta sætið. Television var hluti af New York pönkinu og CBGBs senunni. Hún var leidd af Tom Verlaine söngvara og gítarleikara. Sveitin gaf út tvær stórar plötur, Marquee Moon og Adventure. Þó að Adventure sé ágæt þá er Marquee Moon meistara- verk sveitarinnar. Ótrúelega heilsteypt og kraftmilkil gít- arplata, - hrá og þróuð í senn. Skylduhlustun fyrir aðdáendur The Strokes og annarra nýrokksveita New York-borgar. Trausti Júlíusson Sinead O'Connor «WCi( 4 She Who Dwells r ★ ★★ v | Roadrunner/Skífan ■ Þessi tvöfalda plata er endapunkturinn á ferli Sinéad O’Connor. Fyrri diskurinn inniheldur nýjar og sjaldgæfar upptökur, - sá seinni hefur að geyma tónleika hljóðritaða í Dublin árið 2002. Fyrri platan kemur virkilega á óvart. Hér tekur Sinéad m.a. flottar útgáfur af Love Hurts og Arethu Franklin snilldinni Do Right Wom- an, auk þess sem lagið 1000 Mirrors sem hún söng með Asian Dub Foundation er hér líka. 19 lög og flest flott. Á tónleikaplötunni eru þekktustu lögin hennar, þ.á.m. Nothing Compares 2 U, Thank You For Hearing Me og Fire On Babylon, en þrátt fyrir ágæta spretti þá veldur hún vonbrigðum. Það er einfaldlega ekki nógu mikið lagt í útsetning- ar og flutning. í heildina samt ágætis kveðjupakki fyrir aðdáendurna. Trausti Júlíusson Þeir Sigvaldi Kaldalóns, Svali, útvarpsmaður á FM 957 og Hreimur Örn Heimisson söngvari ákváðu að skipta um starfí dágóðan tíma. Sigvaldi skrapp íSkífuna íSmáralind og sinnti þar ýmsum verkefnum. Hreimur skellti sér í beina útsendingu í útvarpið og er óhætt að segja að strákarnir hafi staðið sig með prýði. „Mér fannst þetta rosalega gaman,“ sagði Svali á FM957 eftir að hann hafði skipt um vinnu við Hreim í Landi & sonum og staðið vaktina í Skífunni. Svali stóð sig með stökustu prýði og sinnti öllum skyldum verslunarmannsins. „Það var svolítið áhugavert að fara að vinna í plötubúð þegar maður er að vinna í útvarpinu allan daginn og er að díla við ákveðna tónlist, að koma svo inn í plötubúð og sjá miklu meiri flóru af tónlist," segir hann. „Ég gæti trúað því að ef maður vinnur lengi í plötubúð gæti maður orðið býsna fróður um tónlist. Maður allavega kynnist mikið af músík ef maður hefur áhuga. Svo er náttúrulega fólk beint fyrir framan mann sem mað- ur er að afgreiða og svoleiðis. Það er mjög gaman því að ég sé nátt- úrulega aldrei fólk þegar ég er í út- varpinu. Ég er alltaf einn, aleinn,” heldur hann áfram. Stóð sig vel í verð- merkingunum Hvað var það skemmtilegasta við Skífuna? „Þetta var í alla staði mjög at- hyglivert. Ég þyrfti reyndar að kom- ast betur inn í klassíska tónlist ef ég ætti að fara að vinna í plötubúð alla daga, því ég hef ekki hundsvit á henni. Það er rosalega gaman að verðmerkja með byssunni. Maður kemst í ákveðinn rythma og getur ekki hætt og ég skora á fólk að prófa þetta sem ekki hafa prófað. Ég held að ég hafi verðmerkt nokkur hund- ruð diska." Svali var óvenju duglegur á verð- merkibyssunni og var í raun óstöðv- andi. „Maður getur breyst í Rainman þarna inni þar sem maður stúderar tónlist allan daginn. Það getur ábyggilega gerst mjög fljótíega eftir að maður byrjar að vinna í plötubúð. Svo finnst mér ekkert leiðinlegt að þarna inni séu Playstation-standar og það er ábyggilega ekki leiðinlegt að þurfa að prófa leikina, þó ég hafi ekki fengið að gera það í þetta skipt- ið. Þetta gæti dregið fram barnið í sjálfum manni," segir útvarpsmó- gúllinn. „Ég get alveg ímyndað mér að þetta starf sé krefjandi, sérstaklega þegar það eru jól og hvað þá vörutalningar, Jesús Kristur. Ég vor- kenni reyndar búðafólki almennt þegar það er vörutalning því ég held að allt sé handtalið,” segir Svali. „Ég veit samt ekki hvort ég væri beint til í að fara að vinna við verslunarstarf þó ég hafi unnið við það áður. Kannski af því að það er ábyggilega svolítið erfitt. Ég held að það sé bara ekkert djók að vakna sex daga vikunnar, því maður er þá að vinna á laugardögum líka og standa í átta til níu klukku- tíma og halda geðheilsunni. Ég held að það sé þess vegna sem Islending- ar séu svona þunglyndir af því að það eru svo margir sem vinna við þetta. Þetta er samt áhugavert starf og ég væri til í að vinna þetta sem aukavinnu með öðru," sagði hann að lokum, ánægður með dagsverkið. Skemmtilegra að sjá viðbrögð folks Hreimur stóð sig með afbrigðum vel í útsendingunni og fannst það frelsandi að vinna í útvarpi. „Það er mjög frelsandi að vita til þess að maður sé að tala út til mörg þúsund einstaklinga sem eru þá væntan- lega að hlusta á mann. Svo skiptir það kannski máli hvað maður segir og hvernig maður segir það þegar maður er að tala við svona marga. Maður má heldur ekki tala of lengi í útvarpið þar sem þetta er allt svo fókuserað hérna og ákveðinn laga- listi sem maður þarf að fylgja. Mað- ur á að tala í kringum hann og forð- ast það að tala um hvað klukkan er og hvernig veður er úti,“ segir Hreimur. „Þetta er hlutur sem myndi ekki henta mér til lengri tíma litið að vera í útvarpinu, ann- ars veit ég það ekki. En ég einhvern veginn þarf að hafa áhorfendur þegar ég er með míkrafóninn, mér finnst skemmtilegra að sjá við- brögðin á þeim sem eru að hlusta á mig. En það er bara mfn skoðun," hélt hann áfram. Ekki rétti karakterinn í starfið Hvað var það skemmtiiegasta við útvarpið? „Það var gaman að prófa þetta því þetta er nefnilega erfiðara en margur heldur. Maður er að tala við fólk sem maður sér ekki og ég myndi segja að það væri frekar erf- iðara heldur en hitt. Þú ert að gefa af þér orkuna og reyta af sér brand- arana og maður veit ekki hvort ein- hver sé að þiggja það sem maður er að gefa. Ég gæti vel trúað því að þegar maður labbar heim úr vinn- unni í vikulok að loknum fimm löngum vinnudögum sé svolítið tekið úr manni, en ég veit það ekki." „Ég hef samt komið í viðtöl í út- varpið en það er ekki það sama og að vinna við það. Þetta var náttúr- lega auðveldara á margan hátt af því ég þekki Svala mjög vel og hann kom mér vel inn í starfið. En ég veit það fyrir víst að strákarnir sem vinna hérna eru öndvegis fírar og eflaust er mjög góður vinnu- mórall hérna. Þó að þetta sé vinna við tónlist myndi ég segja að þetta væri allt öðruvísi en að vinna í Skíf- unni þar sem maður er að díla við alla tegund tónlistar, hverja ein- ustu tegund, en það er miklu meira verslað þar af einhverju öðru en því sem vinsælast er. Flóran er svo miklu breiðari og maður lærir mjög mikið á að vera í Skífunni eins og sennilega á FM. En þegar öllu er á botninn hvolft þá eru þetta mjög ólíkar vinnur," segir Hreimur. „Þetta er allt öðruvfsi en maður myndi nokkurn tímann ímynda sér. Ég segi að það sé eiginlega góður eiginleiki hjá þeim sem eru í þessu að þeir verða að vera bros- andi og jákvæðir út í lífið. í Skíf- unni koma kannski dauðir tímar á milli og maður talar kannski ekki við neinn í smá tíma en það er ákveðin rútína hérna sem er kannski ekki á mínum vinnustað,” segir hann og virðist nokkuð sáttur við sína vinnu. Aðspurður um það hvort hann myndi vilja vinna við áfram í út- varpinu segir Hreimur: „Kannski Svona kallinn minn Hreimi hjálpað að setja tólin rétt á sig. Viðtalið undirbúið Hreimur lenti i viðtali á FM 957 hjá Svala. Aðdáendurnir byrjaðir / útvarpinu stoppar siminn aldrei og fólk hringdi inn óskalög. f beinni Hreimur stóð sig eins og hetja i útvarpinu og það var eins og hann hefði aldrei gert neitt annað Sýning Ólafs Elíassonar, Frost Activity, var opnuð í Hafnarhúsinu Hverjir voru hvar á laugardaginn og var margt fyrir- menna á svæðinu, svo margt reynd- ar að margir þurftu að standa í röð fyrir utan húsið til að kom- ast inn á sýning- una. Þarna voru til að mynda Ólaf- ur Ragnar Gríms- son, forseti ís- lands, og Dorrit Moussaieff eigin- kona hans, Björgólfúr Guðmunds- son og Þóra Hallgrímsson kona hans, Björgólfúr Thor Björgólfsson og Kristín Ólafs- dóttir kona hans sem eins og kunn- ugt er starfar við heimildarmynda- gerð, Ingvar E. Sigurðsson leikari, Þórólfur Ámason borgarstjóri, Steingrímur Her- manns8on, fyrr- verandi forsætis- ráðherra, Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerð- armaður, Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona og maður hennar, Egill Heið- ar Anton Pálsson, Rúnar Freyr Gísla- son leikari, Ragnar Kjaitansson söngv- ari og myndlistar- maður, Nína Dögg Filippusdóttir leik- kona og Baltasar Kormákur, leikari og leikstjóri. Unga fólkið fjölmennti á Hverfisbarinn um helgina og skemmti sér veí eins og við var að búast. Þarna voru þeir félagar Pétur Jóhann Sigfiísson, Sverrir Þór Sverris- son, eða bara Sveppi, og Auðunn Blöndal, Auddi, sem fögnuðu því að Pétur er nýjasti meðlimurinn í 70 mínútna genginu á Popptíví. Þarna voru líka Manúela Ósk Harðardóttir, fyrrum Ungfrú ís- land, Jóhannes Ás- bjömsson og Sig- mar Vilhjálmsson, betur þekktir sem Jói og Simmi í Idol- inu, Garðar Gunn- laugsson Herra ís- land, fyrirsætan Halldóra Lillý Jó- hannsdóttir og knattspyrnumað- urinn Björgólfur Takefusa. Þá var nokkuð af fólki á sömuleiðis. sást til Ásgei beinssonar, varps- og varpsmanns Norðurljósum, út- varpsmannsins Bjarka Sig, Garðars Gimnlaugssonar Herra fsland og Kristjáns Grétarssonar, gítarleikara í Stjórninni. Það voru fastir liðir eins og venjulega í úrvali gesta á ölstofunni um helgina. Egill Ólafsson og Ragn- hildur Gísladóttir úr Stuðmönnum voru hress eins og við var að búast, Benedikt Erlings- son leikari var og mættur eins og Stefán Jónsson leikstjóri, Eiríkur Bergmann Ein- arsson Evrópu- fræðingur, Helga Braga leikkona, veitingamennirn- ir Kormákur Geir- harðsson og Skjöldur Sigur- jónsson, Reynir Lyngdal leikstjóri og Jóhanna Vala úr Idolinu. Tinna Marlna úr Idolinu var á innilegu stefnu- móti á Grillinu á ^_________ Hótel Sögu og þar Kristján Sigurjóns- son hjá Góðu fólki L ' ‘j HjaltadóttiráSjón-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.